LbhÍ - Búvísindi


Minnka letur
Stækka letur
In English

Búvísindi

Búvísindi

Landbúnaðarframleiðsla og ræktun lands eru veigamiklir þættir í búvísindanáminu, sem veitir undirbúning fyrir margvísleg störf tengd landbúnaði, svo sem búrekstur, þjónustu, leiðbeiningar, kennslu og rannsóknir. Námið er góð undirstaða fyrir framhaldsnám og vísindastörf á sviði landbúnaðarfræða.

Í bú­vís­inda­námi er lögð ­áhersla á raun­­grein­ar og hagnýta náttúrufræði, nám­skeið á ­sviði jarð­rækt­ar og bú­fjár­fræða og rekstrar- og ­tækni­grein­ar. Mark­mið­ið er að und­ir­búa nem­end­ur fyr­ir við­fangs­efni og störf sem tengj­ast rækt­un lands og land­bún­að­ar­fram­leiðslu ­ásamt því að ­leggja grunn að fram­halds­námi og fræði­störf­um á ­sviði bú­vís­inda.

Nám til BS-prófs veit­ir und­ir­bún­ing fyr­ir marg­vís­leg störf sem tengj­ast land­bún­aði við ráð­gjöf, ­kennslu og rann­sókn­ir. Einn­ig nýtist nám­ið vel sem und­ir­bún­ing­ur fyr­ir rekstur búa og störf hjá fyr­ir­tækj­um sem ­þjóna land­bún­aði og at­vinnu­rekstri í dreif­býli.

Meistaranám (MS) í búvísindum eykur hæfni fólks til starfa sem sjálfstæðir ráðunautar í leiðbeiningaþjónustu og upp­fyll­ir mennt­un­ar­kröf­ur fyr­ir störf lands­ráðu­nauta.  Einnig er mögulegt að stunda rannsóknanám til doktorsgráðu á sumum sviðum búvísinda.

Búvísindi til BS-prófs
Hvað segja þau um búvísindanám?
Atvinna að loknu námi
Útskrifaðir nemendur háskólabrauta vorið 2010

Nánari upplýsingar gefur Emma Eyþórsdóttir, dósent,
s. 433 5251 / 843 5321.  emma@lbhi.is  

 

Námsskrá
Væntanlegt námsfyrirkomulag.

Kennsluskrá
Námskeið sem kennd verða á tilteknu skólaári


Hvað segja útskrifaðir nemendur um námið?

Þórey Bjarnadóttir

Sigurður Þór Guðmundsson

Eyþór Einarsson







Deila


        
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi