HestafræðiHestafræði er heiti á sameiginlegri námslínu LbhÍ og Hólaskóla – Háskólans á Hólum, til BS-prófs. Hér er á ferð innihaldsríkt, alhliða nám sem er sett upp sem sameiginleg námsgráða (joint degree) LbhÍ og Hólaskóla – Háskólans á Hólum en námsvistin skiptist á milli beggja skólanna eftir árum. Skipulag námsbrautarinnar er í stórum dráttum þannig að grunnfög raungreina og sérfög búvísinda ásamt rekstrargreinum eru kennd á Hvanneyri, en námskeið í reiðmennsku og flestum sérhæfðum hestafögum fara fram á Hólum. Í náminu er lögð áhersla á að skapa traustan þekkingargrunn á öllum sviðum hestafræða með sérstaka áherslu á íslenska hestinn. Við LbhÍ er starfrækt fullbúin hestamiðstöð þar sem nemendur geta m.a. leigt aðstöðu fyrir eigin hross. Nám á hestafræðalínu undirbýr fólk fyrir störf í atvinnugreininni við rekstur hrossabúa og fyrir sérhæfða þjónustu, ráðgjöf og hverskyns miðlun þekkingar við hrossaræktendur og hestamenn. Námið hentar einnig mjög vel sem undirbúningur fyrir framhaldsnám til meistaragráðu á sviði hestafræða stunda má við LbhÍ. Þá er einnig möguleiki á frekara rannsóknanámi á þessu sviði til doktorsgráðu. Hestafræði til BS-prófs |
Námsskrá Kennsluskrá
| ||||