LbhÍ - Skógfræði og landgræðsla


Minnka letur
Stækka letur
In English

Skógfræði og landgræðsla

Skógfræði / landgræðsla

Skógfræði / landgræðsla er þriggja ára B.S. nám. Annars vegar er um að ræða nám með áherslu á sjálfbæra skógrækt og hins vegar á endurheimt vistkerfa á illa förnu landi, jarðvegs- og gróðurvernd og aðra landgræðslu.

Á brautinni er fléttað saman námsgreinum á sviði náttúruvísinda, skógfræði, landgræðslu, tæknifræði, stjórnunar og hagfræði og einnig er farið inn á svið landupplýsinga og landslagsfræða. Lögð er áhersla á að veita nemendum traustan vísindalegan grunn og um leið að búa þá sem best undir störf sem fræðimenn, stjórnendur eða sjálfstæðir atvinnurekendur. Ekki er boðið upp á hliðstæða samsetningu náms við aðra íslenska háskóla.

Boðið er upp á tvær námslínur, skógfræði og landgræðslufræði, sem eru nánast eins fyrstu tvö árin en aðgreinast síðan á lokaári námsins.

Námslína í skógfræði: Áhersla er lögð á skóginn, bæði sem endurnýjanlega hráefnisauðlind á Íslandi og sem vistkerfi sem veitir margvíslega vistþjónustu. Ræktunartækni skógræktar, sjálfbær nýting og umhirða skóglenda, aðlögun að landslagi, vönduð áætlanagerð og skipulag framkvæmda sem og nýsköpun eru áherslur línunnar.

Námslína í landgræðslu: Áhersla er lögð á fræðilegan grunn og hagnýta þekkingu á sviði vistheimtar og sjálfbærrar landnýtingar, sem miðar að verndun og endurheimt gróðurs- og jarðvegsauðlinda. Hnignun landkosta og jarðvegseyðing hafa haft víðtæk áhrif á umhverfisgæði, bæði á Íslandi og alþjóðlega.

Skógfræði og landgræðsla til BS-prófs
Umsagnir
Atvinna
Útskrifaðir nemendur háskólabrauta vorið 2010


 Nánari upplýsingar gefur Bjarni D. Sigurðsson, prófessor
s. 433 5212 / 843 5342
bjarni@lbhi.is

Námsskrá
Væntanlegt námsfyrirkomulag.

Kennsluskrá
Námskeið sem kennd verða á tilteknu skólaári

 

Hvað segja
nemendur?


Rakel J. Jónsdóttir


Valdimar Reynisson


Guðrún Óskarsdóttir








Deila


        
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi