LbhÍ - Endurmenntun


Minnka letur
Stækka letur
In English

Endurmenntun

Endurmenntun LbhÍ
LbhÍ rekur öfluga endurmenntunardeild sem stendur fyrir margskonar námskeiðum um allt land. Endurmenntun LbhÍ býður jafnt stutt og löng námskeið og áhersla er lögð á að þau henti fólki í fullri vinnu. Þá er boðið upp á sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Endurmenntun LbhÍ auglýsir námskeið sín á vefsíðu skólans og á vefsíðunni www.landbunadur.is . Auk þess eru námskeið kynnt í samstarfi við aðrar landbúnaðarstofnanir og ráðunautaþjónustu. Starfsmenntasjóður Bændasamtaka Íslands er opin fyrir umsóknum um stuðning við námskeiðsgjöld. Auk þess er hægt að leita stuðnings frá ýmsum stéttarfélögum og öðrum sjóðum.

Námskeiðsgjöldin eru mynduð af þeim kostnaði sem til fellur vegna námskeiðsins en þátttakendur verða sjálfir að greiða fyrir kvöldverð og gistingu þegar það á við.
Haft verður samband við þátttakendur nokkrum dögum áður en námskeið hefst og þeir beðnir um að staðfesta þátttöku. Eftir að námskeið hefst er greiðsluseðill sendur til greiðanda. Vinsamlegast athugið að ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið, en hefur ekki tilkynnt forföll með formlegum hætti til endurmenntunardeildar LBHÍ áður en námskeið hefst, eða hættir eftir að námskeið er hafið, þá mun LBHÍ innheimta 50% af námskeiðsgjaldi. Ef biðlisti er á námskeiðinu verður námskeiðsgjaldið innheimt að fullu.

Skráning á námskeið.
Sendu tölvupóst á netfangið endurmenntun@lbhi.is Í póstinum frá þér þarf að koma fram: Nafn, kennitala, heimili, sími (heimasími og farsími) og nafn námskeiðs. Þú getur líka hringt í síma 433 5000 og látið skrá þig.
 
Skráning á póstlista
Sendu tölvupóst á netfangið endurmenntun@lbhi.is   Í póstinum frá þér þarf að koma fram: Nafn, kennitala, heimili og sími (heimasími og farsími). Þá munum við senda þér reglulega upplýsingar um námskeið á vegum Endurmenntunar LbhÍ.

Öll námskeið í tímaröð
Allir kennarar á námskeiðum
Styrkir
Umsagnir


Guðrún Lárusdóttir
endurmenntunarstjóri
843 5308
gurra@lbhi.is


Ásdís Helga Bjarnadóttir
verkefnastjóri
843 5302
asdish@lbhi.is


 Björgvin Örn Eggertsson
verkefnastjóri
843 5305
bjorgvin@lbhi.is

Deila


        
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi