Stjórn Landbúnaðarháskóla Íslands er falin háskólaráði og rektor. Háskólaráð markar stefnu í kennslu og rannsóknum og mótar skipulag skólans.
Rektor er yfirmaður stjórnsýslu háskólans og ber ábyrgð á rekstri hans. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. Kröfur um hæfni rektors eru skýrðar í lögum, en háskólaráð veitir umsögn um umsækjendur. Rektor er skipaður til 5 ára í senn.
Í háskólaráði eiga sæti:
1. Rektor sem jafnframt er formaður ráðsins.
2. Fulltrúi skipaður af menntamálaráðherra.
3. Fulltrúi tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
4. Tveir fulltrúar tilnefndir af Bændasamtökum Íslands.
5. Fulltrúi tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins.
6. Fulltrúi tilnefndur af háskólaráði Háskóla Íslands.
7. Fulltrúi tilnefndur af starfsmönnum stofnunarinnar.
8. Fulltrúi tilnefndur af nemendum.
Háskólaráð er þannig skipað:
Ágúst Sigurðsson, rektor, sem jafnframt er formaður ráðsins.
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Vestri Reyni, tilnefndur af BÍ. Varamaður hans er Svana Halldórsdóttir, bóndi, Melum.
Þórhallur Bjarnason, bóndi, Laugalandi, tilnefndur af BÍ. Varamaður hans er Sigurbjartur Pálsson, bóndi, Skarði.
Jón Torfi Jónasson, prófessor og forseti menntavísindasviðs HÍ, tilnefndur af háskólaráði Háskóla Íslands. Varamaður hans er Rögnvaldur Ólafsson, dósent og forstöðumaður stofnunar fræðasetra HÍ.
Álfheiður Sverrisdóttir, formaður Nemendafélags LbhÍ, tilnefnd af sama félagi.
Emma Eyþórsdóttir, dósent við auðlindadeild, tilnefnd af starfsmönnum LbhÍ. Varamaður hennar er Auður Sveinsdóttir dósent við umhverfisdeild.
Orri Páll Jóhannsson, verkefnisstjóri Landvernd, tilnefndur af menntamálaráðherra. Varamaður hans er Sigríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Hvanneyri.
Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður, Lambeyrum, Dalabyggð, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Varamaður hans er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, náms – og starfsráðgjafi.
Stefán Logi Haraldsson, aðstoðarforstjóri BM Vallá, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins. Varmaður hans er Stefán Kalmannsson, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst.
Fundargerðir háskólaráðs