Hlutverk og stefna Landbúnaðarháskóla Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) var stofnaður 1. janúar 2005. LbhÍ er mennta- og rannsóknastofnun á sviði náttúrunýtingar og umhverfisfræða með áherslu á verndun og sjálfbæra nýtingu auðlinda landsins, skipulagsmál, menningu og sjálfbæra þróun. LbhÍ starfar samkvæmt lögum um búnaðarfræðslu og lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna.
LbhÍ veitir m.a. fræðslu og vísindalega þjálfun fyrir fagfólk í landbúnaði og skyldum greinum. Landbúnaðarháskóli Íslands lítur til víðari skilgreiningar á hugtakinu landbúnaður samkvæmt lögum. LbhÍ er heimilt að veita meistara- og doktorsgráður, sem og starfs- og endurmenntun á þeim sviðum sem kennd eru við skólann. Þá skal LbhÍ miðla fræðslu til almennings og veita samfélaginu þjónustu í krafti þekkingar sinnar.
Það er stefna LbhÍ að bjóða fjölbreytilegt og vandað nám og stunda öflugar rannsóknir í ljósi hlutverks og markmiða hans. Skólinn skal vera virkur þátttakandi í sjálfbærri þróun og vísindum í íslensku samfélagi og vera fulltrúi Íslands á fræðasviðum sínum á erlendri grundu.
Ársskýrslur LbhÍ
Ræður rektors LbhÍ við brautskráningu nemenda