|
Hollvinafélag Landbúnaðarháskóla Íslands var stofnað föstudaginn 29. apríl 2011 í Ásgarði á Hvanneyri. Mikill áhugi ríkti meðal fundarmanna, sem sjá ótal möguleika opnast með tilkomu félagsins. Guðni Ágústsson var kjörinn formaður. Á myndinni eru (talið frá vinstri) Ágúst Sigurðsson rektor en þá koma stjórnarmennirnir Runólfur Sigursveinsson, Guðni Ágústsson, Erla Bil Bjarnardóttir og Björn Sigurbjörnsson. Þá kemur Þórólfur Sveinsson, sem sat í undirbúningsnefnd. T.h. er Áslaug Helgadóttir, sem stýrði fundi.
Markmið félagsins er að efla tengsl milli allra sem hafa lokið eða stundað nám við Landbúnaðarháskóla Íslands, Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, Bændaskólann á Hvanneyri og Garðyrkjuskóla ríkisins. Sama gildir um núverandi og fyrrverandi starfsmenn og aðra sem bera hag LbhÍ fyrir brjósti. Síðast en ekki síst mun félagið styðja og efla starf Landbúnaðarháskóla Íslands.
20. júní 2011 Laugardaginn 18. júní komu 45 ára búfræðingar í heimsókn að Hvanneyri. Heimsóknin var að sjálfsögðu mynduð í bak og fyrir. Búfræðingarnir og makar þáðu kaffi og kökur í matsal LbhÍ og við það tækifæri afhentu þeir skólanum stórt Íslandskort. Í myndasafninu má sjá (f.v.) þá Þorkel Fjeldsted, Halldór Bjarnason, Guðbrand Brynjúlfsson og Smára Helgason með kortið á milli sín. Á gjafabréfinu stóð m.a. "Skólanum færum við að gjöf Íslandskort Máls og Menningar með von um að það fái að prýða einhvern vegg í salarkynnum hans, nemendum, starfsfólki og gestum til fróðleiks og ánægju." Veðrið lék við hvern sinn fingur eins og sjá má á myndunum. Ef ýtt er hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í heimsókninni.
21. júní 2011 Búfræðingar, sem útskrifuðust vorið 1951, komu í heimsókn í júní. Í fórum þeirra voru gamlar myndir sem þú ættir að skoða! Ýttu hér.
12. september 2011 Búfræðingar sem útskrifuðust vorið 1942. Nokkrar myndir frá Þorsteini Oddssyni, Heiði á Rangárvöllum. Ýttu hér.
12. deseember 2011 Fréttabréf Hollvinafélags Landbúnaðarháskóla Íslands kom út í dag. Ýttu hér. |
Starfsreglur Hollvinafélags LbhÍ
Fulltrúaráð og stjórn Hollvinafélags LbhÍ 2011-2012
Ertu að leita að afmælisárgangi 2012? Til vinstri á síðunni er hnappur sem gerir þér kleift að sjá þá árganga sem eiga afmæli á næsta ári.

Gamlar myndir frá Hvanneyri. Ýttu á myndina!

Gamlar myndir frá Reykjum
Búið er að virkja hnapp vegna mynda sem tengjast Hvanneyri.
Gamlar myndir. Áttu til myndir frá því að þú varst á Reykjum eða Hvanneyri? Eða varst starfsmaður þeirra stofnana sem síðar mynduðu LbhÍ? Leyfðu okkur að skanna myndirnar þínar! Hafðu samband við Áskel í síma 843 5307.
Skráðu þig! Ef þú skráir þig í félagið er tryggt að þú færð strax upplýsingar um það sem viðkemur félaginu. Sendu tölvupóst á askell@lbhi.is með nafni, kt, heimilisfangi, netfangi og farsíma.
Útskrifaðir nemendur vorið 2010
|