Samþykkt í háskólaráði 1. september 2011
Í hnotskurn er stefnan þessi:
Lýsa yfir að íslenska sé opinbert mál
Kenna á íslensku í grunnnámi
Rækta íðorðastarf
Hvetja til fræðilegra skrifa á íslensku
Kynda undir áhuga á íslensku máli
Vísa á leiðir til náms í íslensku
Vanda til verka
Landbúnaðarháskóli Íslands er íslensk mennta- og rannsóknastofnun á sviði náttúrunýtingar og umhverfisfræða sem jafnframt starfar í alþjóðlegu umhverfi. Íslenska er almennt tal- og ritmál á öllum sviðum skólans, í kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu. Málstefna LbhÍ á að vera lifandi, skapandi og hvetjandi jafnt fyrir starfsmenn sem nemendur. Stefnan felur í sér að öll kennsla og próf til bakkalárgráðu fari fram á íslensku. Frá þessu má þó víkja ef kennari er erlendur, eða ef kennslan er einkum ætluð útlendingum. Um nám á meistara- og doktorsstigi gilda önnur viðmið enda er nám á því stigi að stórum hluta rekið í alþjóðlegri samvinnu. Háskólinn skal með ákveðnum hætti hvetja starfsmenn til að sinna málrækt, t.d. með því taka saman fagorðasöfn og birta rannsóknir á íslensku jafnt sem ensku eða öðrum erlendum málum. Kennarar eru sérstaklega hvattir til að leiðbeina nemendum um málnotkun eftir því sem við verður komið, auk venjubundinna faglegra leiðbeininga. Landbúnaðarháskólinn leggur áherslu á að vinna að varðveislu orðaforða sem og nýorðasmíð á þeim fræðasviðum sem skólinn sinnir. Þannig tekur skólinn virkan þátt í nýsköpun, viðhaldi og þróun íslenskrar tungu.
Framkvæmd og útfærsla
- Málstefna LbhÍ skal vera sýnileg á heimasíðu skólans í íslenski og enskri útgáfu.
- Erlendir starfsmenn skulu upplýstir um möguleika til náms í íslensku og hvar hægt er að finna upplýsingar um íslenska menningu.
- LbhÍ getur boðið upp á heilar námsleiðir í framhaldsnámi eða einstök námskeið á erlendum málum, eftir því sem eftirspurn og aðstæður leyfa.
- LbhÍ leitast við að bjóða nemendum og starfsmönnum aðstoð í ritun í því skyni að stuðla að betri málnotkun.
- Árlega skal veita viðurkenningu þeim nemanda sem skilað hefur lokaverkefni á afgerandi góðri íslensku.
- Háskólinn standi fyrir viðburði á Degi íslenskrar tungu þar sem starfsfólk og nemendur vinna með sérstöðu skólans og móðurmálið, (dæmi: upplestur náttúruljóða, hestavísur ofl.)
- Stofnuð verði nefnd sem setur í farveg hvernig hægt er að styrkja fagorðasöfn LbhÍ. Á það bæði við um þýðingar og nýorðasmíð en einnig varðveislu orða t.d. úr landbúnaði m.a. í tengslum við Landbúnaðarsafn Íslands og fagfélög.
Umsjón og ábyrgð
Rektor ber ábyrgð á málstefnu Landbúnaðarháskóla Íslands en deildir hafa umsjón með framkvæmd hennar.
Um tilurð málstefnu LbhÍ:
Vorið 2010 hvatti ráðherra mennta- og menningarmála alla háskóla landsins til að setja sér málstefnu. Þá um haustið var ákveðið að hefjast handa við smíði slíkrar stefnu og var meðal annars unnið með hugmyndir á fundum starfsmanna í tilefni Dags íslenskrar tungu þann 16. nóvember 2010. Fyrstu drög bárust síðan til háskólaráðs í desember sem ákvað að senda drögin til umfjöllunar hjá deildum skólans. Drögin að
málstefnunni voru síðan kynnt á málþingi sem Íslensk málnefnd stóð fyrir um framtíð íslensku í háskólum
þann 10. mars 2011. Endanleg tillaga var síðan lögð fyrir háskólaráð LbhÍ þann 1. september 2011.
Stefnan byggir m.a. á málstefnu HÍ frá 21. maí 2004 og HA frá 22. febrúar 2008.
http://www.hi.is/skolinn/malstefna_haskola_islands
http://www.unak.is/static/files/Stjornsysla_stefnumal/Malstefna%20HA_%20samthykkt%20220208.pdf