Vefur um samstarf opinberu háskólanna
Samstarf opinberu háskólanna er tveggja ára átaksverkefni sem hófst í ágúst 2010. Verkefnið er byggt á stefnuskjali sem gefið var út af mennta- og menningarmálaráðherra þann 9. ágúst 2010. Markmið verkefnisins snúa að eflingu íslenskra háskóla, kennslu og rannsókna, aukinni hagkvæmni í rekstri háskóla og að tryggja háskólastarfsemi víða á landinu.
Aðilar að verkefninu eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum.
Ýtið hér til að komast á vef, þar sem finna má lýsingu á verkefninu, upplýsingar um vinnuhópa sem starfað hafa á vegum verkefnisins, skjöl og gögn sem tengjast verkefninu og fréttir af framgangi verkefnisins.