
Starfsmannastefna
Starfsmannastefna Landbúnaðarháskóla Íslands
Starfsmannastefna LbhÍ byggist að hluta til á lögum, reglum og samningum, skráðum og óskráðum um tengsl starfsmanna og vinnustaðar, s.s. almennum lögum um háskóla, reglum Landbúnaðarháskóla Íslands, lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, stjórnsýslulögum, jafnréttislögum, lögum um kjarasamninga, kjarasamningum og stofnanasamningum.
Markmið
Markmiðið með starfsmannastefnu Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa vinnuumhverfi sem laðar að hæft starfsfólk og gerir eftirsóknavert að vinna hjá skólanum. þannig að skólinn geti sinnt hlutverki sínu með sóma og skari fram úr á sínu sviði.
Leggja skal áherslu á lýðræði í starfi skólans, m.a. í skoðanaskiptum og ákvörðunum sem varða starfsfólk skólans.
Leitast er við að upplýsingaflæði innan skólans sé skilvirkt og stuðlað er að því að á meðal starfsmanna ríki gagnkvæmt traust og gott samstarf.
Leitast skal við að efla frumkvæði, metnað, jákvætt hugarfar og að starfsfólk sýni ábyrgð í starfi. Starfsmannastefnunni er ætlað að tryggja starfsmönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi.
Starfsmannastefna Landbúnaðarháskóla Íslands tekur til allra starfsmanna skólans. Yfirstjórn samþykkir starfsmannastefnu og endurskoðar hana á tveggja ára fresti. Stjórnendur Landbúnaðarháskólans bera ábyrgð á því að henni sé framfylgt, en starfsmannastjóri fylgist með framkvæmd hennar
Leiðarljós í samskiptum
Til að stuðla að góðum starfsanda eru starfsmenn hvattir til að hafa eftirfarandi að leiðarljósi í öllum samskiptum á vinnustaðnum:
gagnkvæma virðingu
samvinnu og sveigjanleikia
hreinskilni og heiðarleika
jákvæðni og þjónustulund
hlýlegt og vingjarnlegt viðmót
umburðarlyndi og tillitsemi
stuðning við hvert annað í gleði og sorg
jafnræði og frumkvæði
Starfsumhverfi og gagnkvæmar væntingar
Gott starfsumhverfi dregur úr álagi og streitu og eykur almenna starfsánægju. Til að stuðla að góðum starfsanda þarf að ríkja traust, trúnaður og hreinskilni milli allra starfsmanna. Stjórnendur skulu tileinka sér lýðræðislega stjórnarhætti, sýna jákvætt viðhorf til starfsmanna og hafa samráð við þá um mál sem þá varðar. Starfsmenn skulu temja sér kurteisi, sýna hver öðrum tilhlýðilega virðingu og jákvætt viðmót. Stjórnendur og starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á að skapa góðan starfsanda við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Skólinn væntir þess að starfsmenn:
sýni ábyrgð og sjálfstæði
séu tilbúnir að taka þátt í þróun og breytingum
sýni vilja og hæfni til samstarfs
sinni starfi sínu af trúmennsku og metnaði
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi