LbhÍ - Starfsstöðvar

Minnka letur
Stækka letur
In English

    Starfsstöðvar

    Hvanneyri

    Aðalstarfsstöð LbhÍ er á Hvanneyri í Borgarfirði. Á Hvanneyri er hluti af búrekstri LbhÍ sem fyrst og fremst er nýttur til kennslu og rannsókna. Á staðnum eiga nú ríflega 300 manns lögheimili en með nemendum skólans og öðrum sem dvelja þar í tengslum við skólastarfið, búa hátt á fimmta hundrað manns á Hvanneyri. Þar er rekinn grunnskóli og leikskóli
    Sími: 433 5000  Sjá kort
    Póstfang: 311 Borgarnes

     

    Keldnaholt

    Á Keldnaholti í Reykjavík er aðalaðsetur rannsóknasviðs LbhÍ. Á Keldnaholti er aðstaða til fóðurefnagreininga, kolefnismælinga, ýmissa umhverfisrannsókna og í næsta nágrenni er tilraunastöð LbhÍ í jarðrækt, Korpa. Fjölmargir starfsmanna LbhÍ á Keldnaholti sinna einnig kennslu á Hvanneyri og Reykjum.
    Sími: 433 5000
    Póstfang: 112 Reykjavík

     

    Reykir

    Reykjum í Ölfusi fer fram starfsmenntanám í blómaskreytingum, garðplöntuframleiðslu, skógrækt, skrúðgarðyrkju, umhverfisfræði og ylrækt. Á Reykjum er m. a. tilraunagróðurhús.
    Sími: 433 5000
    Póstfang: 810 Hveragerði



     

    Möðruvellir

    Starfsstöð LbhÍ á Norðurlandi er á Möðruvöllum í Hörgárdal. Landbúnaðarháskólinn rekur kúabú á Möðruvöllum fyrir rannsóknastarfssemina sem þar fer fram. Skrifstofur LbhÍ eru í Búgarði í húsnæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar á Akureyri.
    Sími: 460 4457.
    Póstfang 601 Akureyri



     

    Stóra-Ármót

    LbhÍ rekur í samvinnu við Búnaðarsamband Suðurlands tilraunastöð í nautgriparækt á Stóra-Ármóti. Á búinu er megináhersla lögð á fóðrun mjólkurkúa til hámarksafurða. Búnaðarsamband Suðurlands á jörðina og allt sem henni fylgir og ber fjárhagslega ábyrgð á búinu. Tilraunastjóri er ráðinn af Landbúnaðarháskóla Íslands til að hafa umsjón með tilraunastarfseminni sem fram fer.
    Sími: 480 1800
    Póstfang: 801 Selfoss



     

    Hestur

    Á Hesti í Borgarfirði er starfrækt kennslu og rannsóknafjárhús Landbúnaðarháskólans. Auk ýmisskonar rannsókna á sauðfé og aðbúnaði sauðfjár eru nemendum kennd þar öll helstu undirstöðuatriði varðandi fóðrun og hirðingu sauðfjár, framkvæmd kynbótastarfs s.s. mælingar og holdamat o.fl.
    Sími: 433 5000.
    Póstfang: 311 Borgarnes


            
    Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi