Við LbhÍ eru þrjár deildir:
Auðlindadeild, Umhverfisdeild, og Starfs- og endurmenntunardeild.
Háskólanám
Hægt er að stunda nám til BS prófs á fimm námsbrautum: búvísindum, hestafræði, náttúru- og umhverfisfræði, skógfræði/landgræðslu og umhverfisskipulagi (fornám að landslagsarkítektúr). Einnig er boðið upp á meistaranám (M.Sc.) og doktorsnám. Miðstöð háskólanámsins er á Hvanneyri í Borgarfirði.
Umsóknareyðublað vegna háskólanáms
Starfsmenntanám
Á framhaldsskólastigi eru fimm námsleiðir: Blómaskreytingar, búfræði, garðyrkjuframleiðsla, skógur/umhverfi og skrúðgarðyrkja. Garðyrkjugreinar eru kenndar að Reykjum í Ölfusi en búfræði á Hvanneyri í Borgarfirði.
Umsóknareyðublað vegna starfsmenntanáms
Fjarnám
Boðið er upp á fjarnám á fimm starfsmenntabrautum: blómaskreytingar, búfræðibraut, garðyrkjuframleiðsla, skrúðgarðyrkja og skógur/umhverfi.
Endurmenntun
Endurmenntunardeild LbhÍ býður upp á fjölda námskeiða.
Innra mat á gæðum starfs LbhÍ