English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
   
1.2.2010  Áskell Þórisson
Icelandic Agricultural Sciences viðurkennt sem fyrsta flokks alþjóðlegt vísindarit
Nú hefur verið staðfest að tímaritið Icelandic Agricultural Sciences er komið á Web-of-Science og þar með ISI- grunninn (Institute for Scientific Information). Þar með er ritið viðurkennt sem fyrsta flokks alþjóðlegt vísindarit. Eftir því sem best er vitað er ritið þriðja íslenska fræðiritið að komast inn á þennan virðulegasta gagnagrunn vísindasamfélagsins.

Vísindaritið Icelandic Agricultural Sciences er sent á margar fræðastofnanir víða um heiminn og hafa greinar þess verið skráðar í CAB Abstracts, BIOSIS gagnagrunninn og Google-Scholar leitarvélina. Þannig hafa greinar ritsins náð athygli erlendra fræðimanna. Rit númer 22 kom út í nóvember síðastliðnum og efni þess er öllum aðgengilegt, m.a. á www.ias.is eða á Google-Scholar. Athygli er vakin á því að skilafrestur í næsta rit er 1. mars.

Forsenda þess að komast inn á ISI-grunninn er að vitnað sé í greinar ritsins í öðrum alþjóðlegum fræðiritum og að þær séu skrifaðar eftir skýrum reglum, séu ritrýndar og beri vott um öguð vinnubrögð. ISI endurskoðar stöðugt skráninguna og fræðirit geta því fallið út úr gagnagrunninum standist þau ekki staðla og skilmerki stofnunarinnar.

Ritstjórn IAS er þannig skipuð: Bjarni E. Guðleifsson (ritstjóri), Bjarni Diðrik Sigurðsson og Sigurður Ingvarsson