English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
   
2.2.2010  Áskell Þórisson
Námskeiðaröð fyrir starfsmenn íþrótta- og golfvalla
Stefnt er að því að setja af stað námskeiðaröð fyrir starfsmenn íþrótta- og golfvalla við LbhÍ í haust í samvinnu við Samtök íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi (SÍGÍ), KSÍ og GSÍ. Í röðinni eru fjögur námskeið sérsniðin að þörfum þessara starfsmanna. Tilgangurinn er að styrkja faglega þekkingu starfsmanna íþrótta- og golfvalla sem væntanlega skilar sér í betri umhirðu á völlunum.

Bjarni Þór Hannesson, grasvallatæknifræðingur, vinnur nú að skipulagningu þessarar námskeiðaraðar. Bjarni lauk nýlega mastersnámi í grasvalltæknifræði (e. Sport Surface Technology), fyrstur Íslendinga. Bjarni hefur unnið við viðhald golfvalla á Íslandi undanfarin 15 ár, en hann hefur einnig starfað á þekktum völlum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Má meðal annars nefna Old Course í St. Andrews í þessu sambandi.

Fyrirkomulag námskeiðanna verður með svipuðu sniði og námskeið Grænni skóga, en þar mæta nemendur á föstudegi kl. 16-19 og laugardegi kl. 9-16. Tvö námskeiðanna eru á haustönn og tvö á vorönn.