
Skógræktarfélagið Dafnar stendur fyrir opnu fræðsluerindi þriðjudaginn 9. febrúar kl. 20 í Ársal, sem er í aðalbyggingu LbhÍ á Hvanneyri. Þar flytur
Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor í skógfræði við LbhÍ erindi sem nefnist
Skógar Vestfjarða. Sumarið 2009 skipulögðu nemendur í skógfræði við LbhÍ sérstaka námsferð um Vestfirði þar sem markmiðið var að kynnast sem best náttúru landshlutans, með sérstakri áherslu á náttúruskóga hans og eldri gróðursetta skóga sem finnast þar.

Skógræktarfélagið Dafnar stendur fyrir opnu fræðsluerindi þriðjudaginn 9. febrúar, kl. 20 í Ársal, sem er á í aðalbyggingu LbhÍ á Hvanneyri. Þar flytur
Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor í skógfræði við LbhÍ erindi sem nefnist
Skógar Vestfjarða. Sumarið 2009 skipulögðu nemendur í skógfræði við LbhÍ sérstaka námsferð um Vestfirði þar sem markmiðið var að kynnast sem best náttúru landshlutans, með sérstakri áherslu á náttúruskóga hans og eldri gróðursetta skóga sem finnast þar.
Leiðsögumenn í ferðinni voru þau
Lilja Magnúsdóttir,
Sighvatur J. Þórarinsson og
Sæmundur Kr. Þorvaldsson. Leiðangurinn var alls fjögurra daga langur og fór hópurinn vítt og breitt um Vestfirði. Auk nemenda var Bjarna Diðrik sérstaklega boðið í ferðina, enda hafði það komið fram áður að nemendum fannst mjög skorta á þekkingu hans á skógum og skógræktarsögu landshlutans. Það var því gengið frá því að í þessu "námskeiði" væru átta kennarar en aðeins einn nemandi, þ.e.a.s. Bjarni Diðrik. Fyrirlesturinn er því nemendafyrirlestur prófessorsins! Erindið er öllum opið.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
Holger Markus Hansen, ræktunarstjóra tilraunastöðvar LbhÍ á Reykjum að snyrta tré í Skrúð í Dýrafirði. Myndin var raunar tekin við annað tækifæri en það sem um er getið hér að ofan, en eins sjá má þá vaxa myndarleg tré í Dýrafirði.