Nýjasta hefti vísindaritsins IAS (Icelandic Agricultural Sciences, fyrrum Búvísindi) kom út rétt fyrir síðustu áramót. Í þessu 20. hefti (2007) ritsins eru 10 vísindagreinar um fjölbreytilegt efni eins og sjá má á meðfylgjandi lista:
1) Yfirlitsgrein um samband snefilefnaskorts og búfjársjúkdóma á Íslandi
2) Áhrif arfgerða alaskaaspar á vaxtarferil þeirra
3) Áhrif sjávarseltu á vorkal alaskaaspar
4) Hitafar í þremur mismunandi birkiskógum með ólíka nýtingarsögu
5) Þýðing erfðabreytileika innlendra víðitegunda fyrir notkun þeirra í landgræðslu
6) Hníslasmit í íslenku sauðfé.
7) Áburðartilraunir á alaskalúpínu
8) Vetnisframleiðsla og efnaskipti fjögurra hitakærra, gerjandi hverabaktería
9) Áhrif skógræktar á sýrustig jarðvegs
10) Spájöfnur fyrir lífmassa og bolrúmmál ungs síberíulerkis
Hægt er að nálgast ókeypis pdf-afrit af öllum greinum á heimasíðu ritsins
www.ias.is.

IAS er eina alþjóðlega vísindaritið sem gefið er út hérlendis sem fjallar um rannsóknir sem tengjast landnotkun, ræktun og umsýslu með lifandi náttúru. Ritið er gefið út á ensku í samstarfi Landbúnaðarháskólans, Bændasamtakanna, Hólaskóla, Rannsóknastöðvar skógaræktar á Mógilsá, Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði á Keldum, Veiðimálastofnunar og Landgræðslu ríkisins. Allar greinar eru ritrýndar af að minnsta kosti tveimur fagmönnum auk ritstjóra. IAS er sent til um 200 bókasafna víðsvegar um heiminn, auk þess sem greinar sem í því birtast eru skráðar hjá Google-Scolar, CAP Abstracts og BIOSIS gagnagrunninum. Efni sem í ritinu birtist hefur því ágæta alþjóðlega dreifingu og kemur upp í helstu bókasafns-leitarvélum.
Þegar liggja fyrir handrit sem verið er að ritrýna fyrir 21. árgang ritsins (2008), en ennþá er pláss fyrir nokkrar nýjar greinar. Allir fræðimenn þeirra stofnana sem að útgáfunni standa eru hvattir til að senda tilkynningu á ritstjóra IAS
editor@ias.is ef þeir hyggjast senda inn handrit til yfirlestrar fyrir næsta hefti. Handrit eiga að hafa borist ritstjóra fyrir 25. febrúar 2007.