English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
   
3.12.2008  Áskell Þórisson
Ný fræðibók um áhrif skógræktar á líffræðilegan fjölbreytileika, byggðaþróun og landslag
Út er komin ný fræðibók í TemaNord ritröð vísindaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Bókin er á ensku og nefnist „Effects of afforestation on ecosystems, landscape and rural development“. Ritstjórar bókarinnar eru Guðmundur Halldórsson, Edda S. Oddsdóttir og Bjarni Diðrik Sigurðsson. Bókin er til sölu á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn - smella hér. Auk þess sem hægt er að hlaða beint niður rafrænu afriti af bókinni - smella hér.  











Út er komin ný fræðibók í TemaNord ritröð vísindaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Bókin er á ensku og nefnist Effects of afforestation on ecosystems, landscape and rural development. Ritstjórar bókarinnar eru Guðmundur Halldórsson, Edda S. Oddsdóttir og Bjarni Diðrik Sigurðsson.

Bókin var skrifuð í samstarfi fræðimanna frá Danmörku, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð og fylgdi eftir alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á Íslandi. Verkefnið var jafnframt þemaverkefni íslenskra stjórnvalda síðast þegar þau veittu Norrænu ráðherranefndinni forstöðu.

Í bókinni er gefið þverfaglegt yfirlit yfir reynslu Dana, Svía, Norðmanna, Færeyinga og Íslendinga af skógræktarverkefnum. Slík verkefni hófust að alvöru í Danmörku við lok 18. aldar, í vestur Svíþjóð á 19. öld, Noregi á fyrri hluta 20. aldar en ekki fyrr við lok 20. aldar á Íslandi og Færeyjum. Mjög fróðlegt er að bera saman reynsluna af skógræktarverkefnunum í þessum löndum og þeirra áhrifa sem þau hafa haft á mannlegt samfélag, náttúrufar og landslag.

Íslendingar hafa samið suma af köflum bókarinnar og ber þar mest á vísindamönnum við Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógrækt ríkisins og Náttúrufræðistofnun. Auður Sveinsdóttir, dósent í umhverfisskipulagi, er fyrsti höfundur að kafla sem fjallar um áhrif skógræktar á landslag og lýðheilsu. Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor í skógfræði við LbhÍ, er fyrsti höfundur kafla um áhrif skógræktar á kolefnisbindingu í gróðri og jarðvegi.

Bókin er til sölu á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Auk þess er hægt er að hlaða beint niður rafrænu afriti af bókinni. Sjá nánar í frétt á forsíðu vefsins.