Sjá námsskipulag búfræði fjarnáms á stiku til vinstri.
Sjá áfangalýsingar búfræði fjarnáms á stiku til vinstri
1. Inngangur
Hér verður kynnt fyrirkomulag fjarnáms í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Gerð verður stuttlega grein fyrir skipulagi námsins, vali námsáfanga, framkvæmd verklegra hluta námsins, fyrirkomulagi prófa, kostnaði og öðru sem máli skiptir.
Fjarnám í búfræðum miðast einkum við fólk sem er við búskap og því reynt að skipuleggja samverustundir með það í huga. Til að geta sinnt náminu eins og til er ætlast þurfa fjarnemar að hafa aðgang að búi í fullum rekstri (samþykkt skóla um að búið fullnægi kröfum þarf að liggja fyrir við upphaf náms)
Umsækjandi verður að hafa náð 25 ára aldir og auk þess hafa umtalsverða reynslu af hefðbundnum búskap og stunda hann sem atvinnu, meðan nám varir.
2. Skipulag fjarnámsins
Fjarnámið er byggt upp á svipaðan hátt og hefðbundið búfræðinám. Fjarnemar eru teknir inn annað hvert ár (næst haust 2011) og er boðið upp á nám á hálfum hraða (hægt er að taka námið á lengri tíma ef þannig hagar til). Valgreinar eru kenndar ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst..
Hægt er að taka einstaka áfanga námsins en ávallt verður þó að taka tillit til undanfarareglna o.fl.
Mikilvægt er að allt mat á fyrra námi, skipulag og áætlun um námsframvindu sé gerð þegar í upphafi. Betra er að breyta áætlunum eftir því sem á námið líður en að fara af stað með óljós markmið og fyrirætlanir.
Þeir sem velja að ljúka búfræðiprófi í fjarnámi fá að sjálfsögðu metið fyrra nám á sama hátt og nemendur í hefðbundnu námi. Því er mikilvægt að skólinn fái sem gleggstar upplýsingar um fyrra nám hvers nemenda um leið og sótt er um í fyrsta sinn. Ósk um mat á fyrra námi þarf að koma frá nemandanum.
Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um Internetið (veraldarvefinn). Því er mikilvægt að allir séu vel kunnugir slíkum samskiptum.
Verklegir hlutar námsáfanga eru kenndir á námskeiðum, sem haldin eru eftir þörfum. Reynt verður að stytta eins og mögulegt er, fjarveru nemenda frá vinnustað/búum sínum. Nánara skipulag þessa þáttar námsins er kynnt við upphaf hvers áfanga. Sjá má helstu áherslur verklegra þátta í áfangalýsingunum hér aftar. Mikilvægt er að búfræðifjarnemar hafi ákveðið býli handbært við gerð ýmissa verkefna í tengslum við námið. Skólinn áskilur sér rétt til úttektar á þeim búskap sem þar fer fram m.t.t. að hann fullnægi kröfum varðandi verkefnavinnuna.
2.1 Skipulagning námsdvalar
Fjarnemar sem óska að ljúka búfræðiprófi þurfa að byrja snemma á námsferlinum að safna ákveðnum upplýsingum sem tilheyra NDL-áföngum (sjá áfangalýsingar). Þessi hluti hefðbundna námsins fer fram á sérstökum kennslubúum. Fjarnemar sem haf mikla reynslu af búskap og stunda hann sem aðalatvinnu taka þessa áfanga að lang mestu leyti við sitt eigið bú. Hve langan tíma þessi hluti tekur fjarnema er einstaklingsbundið og ræðst af mörgum þáttum. Sjá nánar í áfangalýsingum (2. önn).
2.2 Próf
Próf eru að öllu leyti sambærileg í fjarnámi og hefðbundnu námi (sjá kennsluskrá LbhÍ). Verkefni og ritgerðir eru þó oft stærri hlutar lokaeinkunnar. Fjarnemar eiga þess oftast kost að taka próf í heimahéraði, þeir standa sjálfir straum af kostnaði sem prófunum fylgja og finna sér próftökustað í samráði við fjarnámsstjóra. Öllum fjarnemum býðst að taka próf á Hvanneyri, án próftökugjalds. Fjarnemar eru beðnir að kynna sér kafla um próf og próftöku í búfræðinámi (sjá www.lbhi.is).
2.2 Kröfur um tölvukost
Til að taka þátt í fjarnáminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu með tengingu við Internetið. Nauðsynlegt er að eftirfarandi búnaður sé til staðar.
Vélbúnaður:
Tölva minnst Pentium-1GHz með 512Mb (stýrikerfi: WindowsXP) eða sambærileg Machintosh tölva með uppsettann Firefox vefskoðara
Tengibúnaður við Internet, minnsti hraði 10 Mb
Mjög æskilegt að hafa aðgang að prentara.
Hugbúnaður:
Windows XP (lágmark 2000)
Ritvinsluforrit og Töflureiknir (ekki eldra en Word/Excel 2000)
Internet Explorer 6,0 (ekki eldra) eða sambærilegur vafri
Tölvupóstforrit. Nemendur eru hvattir til að nota örugga póstþjóna, ekki gjaldfrjálsan aðgang að ótryggum þjónum, slíkt býður upp á vandamál svo sem vírussmitun.
Vírusvarnarforrit er nauðsynlegt að hafa
3. Undirbúningskröfur
Gert er ráð fyrir að fjarnemar uppfylli sömu undirbúningsskilyrði og þeir sem eru í reglubundnu námi. Allir, sem eru starfandi við búskap, verða þó innritaðir óháð bóklegum undirbúningi.
Fjarnemar þurfa að hafa allnokkra þjálfun í tölvunotkun og vera m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra. Námið fer fram í gegn um fjarnámsbúnað skólans en krefst engu að síður verulegrar vinnu í almennum forritum.
4. Kostnaður
Við innritun greiðist grunngjald og síðan fast gjald fyrir hverja einingu í námi þannig (haust 2010):
- Innritunargjald kr. 27.000,- greiðist fyrir skólaárið (óháð hvort nám er stundað bæði fyrir og eftir áramót)
- Fyrir hverja einingu greiðast kr. 2.700,-
Auk þessa kemur til námsgagna- og dvalarkostnaður sem er ákaflega mismunandi eftir því hvaða áfanga nemendi tekur hverju sinni. Prófkostnað greiðir fjarnemi sem ekki tekur sín próf á Hvanneyri.
5. - Innritun - Upphaf náms
Eyðublöð til umsóknar um þátttöku í fjarnámi, fást hjá skólanum. Umsóknir skal senda til skólans. Utanáskriftin er:
Kennsluskrifstofa LbhÍ, Hvanneyri, 311 BORGARNES
Haft verður samband við þá sem innritast í fjárnámið, svo unnt sé að ganga frá skipulagi fyrir hvern og einn.
Námið er fyrst og fremst ætlað fólki sem starfar við landbúnað í einstaka tilvikum eru aðrir þó teknir inn í búfræðifjarnámið að uppfylltum einstaklingsbundnum skilyrðum hverju sinni.
Miðað er við að ALLIR fjarnemar komi að Hvanneyri í byrjun hverrar annar til kynningar á skipulagi námsins. Þá er einnig reynt að koma fyrir á sama tíma, kennslu í einstökum þáttum sem örðugt er að fjarkenna.
Það er von okkar að meðfylgjandi gögn veiti væntanlegum fjarnemum nauðsynlegar upplýsingar.
Viljir þú fræðast frekar um málið, væri okkur ánægja ef þú hefðir samband,
Edda Þorvaldsdóttir, umsjónarm. fjarnáms
rafpóstur: edda@lbhi.is
sími: 433 5000