Fjarnám í garðyrkjugreinum
1. Inngangur
..........Helstu atriði:
Hægt er að stunda garðyrkju í fjarnámi að uppfylltum skilyrðum skólans. Fjarnám er eingöngu hægt að stunda á hálfum hraða þannig að það tekur alls 4 ár eða 8 annir að ljúka bóklegu námi í garðyrkju í fjarnámi.
Nemendur þurfa að vera orðnir 25 ára gamlir og vera starfandi í faginu til að komast í fjarnám. Einungis eru teknir inn 11 nemendur í fjarnám þegar nýnemar eru teknir inn. Við ákvörðun um það hverjir komast inn í fjarnám ganga þeir fyrir sem auk þess að uppfylla fyrrgreind skilyrði, hafa búsetu lengst frá skólastaðnum.
Nemendur í fjarnámi þurfa að koma í skólann tvisvar til þrisvar yfir önnina í verklegar æfingar og er mætingarskylda í slíkar æfingar. Athugið að ákveðin fög sumra garðyrkjubrauta er ekki hægt að kenna í fjarnámi og þurfa nemendur þá að koma á staðinn í verklegar lotuvikur til að ljúka þeim áföngum. Nánari upplýsingar um þá áfanga er að fá hjá námsbrautarstjórum garðyrkjubrauta.
Hér verður kynnt fyrirkomulag fjarnáms í garðyrkjugreinum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Gerð verður stuttlega grein fyrir skipulagi námsins, vali námsáfanga, framkvæmd verklegra hluta námsins, fyrirkomulagi prófa, kostnaði og öðru sem máli skiptir.
Fjarnám í garðyrkju skiptist í blómaskreytingar, garðyrkjuframleiðslu (garð- og skógarplöntuframleiðslu), skrúðgarðyrkju og skóg og náttúru. Kennsla á þessum brautum fer fram á Reykjum í Ölfusi. Nemendur þurfa að hafa umtalsverða starfsreynslu þegar þeir hefja nám. Einnig eru nemendur í verknámi meðan á námi stendur. Skólinn verður að viðurkenna verknámsstaði nemenda. Nemendur í skrúðgarðyrkju þurfa að vera á formlegum námssamningi hjá skrúðgarðyrkjumeistara til að komast inn á brautina.
2. Skipulag fjarnáms í garðyrkjugreinum
Fjarnámið er nánast alveg eins upp byggt og staðarnám en nemendur taka námið á 8 önnum í fjarnámi í stað 4 anna í staðarnámi. Nemendur innritast á sama hátt í skólann.
Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um Internetið (veraldarvefinn). Því er mikilvægt að allir séu vel kunnugir slíkum samskiptum.
Verklegir hlutar garðyrkjunámsins eru kenndir á námskeiðum, sem haldin eru með jöfnu millibili yfir skólatímann. Nánara skipulag þessara þátta námsins er kynnt við upphaf hvers skólaárs (sjá aftar í þessum bækling).
Skyldumæting er í verklega þætti og námslotur hvers áfanga.
2.1 Skipulag verknáms
Verknám fer fram á verknámsstöðum sem skólinn viðurkennir. Verknámsstaðir eru mismunandi eftir því hvaða braut nemandi velur, þannig starfa nemendur blómaskreytingabrautar einkum í blómaverslunum, nemendur garðyrkjuframleiðslu starfa við framleiðslu garðplantna, skógarplantna eða ylræktarafurða, nemendur skrúðgarðyrkju eru á samningi hjá skrúðgarðyrkjumeisturum og nemendur í skógi og umhverfi starfa hjá skógræktarfélögum, sveitarfélögum, Landgræðslu eða sambærilegum fyrirtækjum. Nemandinn þarf sjálfur að útvega sér verknámsstað og sækja svo um að skólinn samþykki verknámsstaðinn.
Verknámið tekur alls 72 vikur. Þar af eru 12 vikur svokallaður reynslutími og 60 vikur eru svo dagbókarskyldur hluti verknáms. Nemendur þurfa að halda dagbók yfir verk og verkþætti í þessar 60 vikur og gera ítarlegar verklýsingar fyrir hvern verkþátt. Dagbók er skilað við komuna í skólann að hausti og námsbrautarstjóri fer yfir dagbókina og gefur einkunn fyrir hana.
Námsbrautarstjóri heimsækir nemendur í verknámi á verknámsstað einu sinni á sumri. Einungis þeir nemendur sem hafa lokið verknámi útskrifast sem fullgildir garðyrkjufræðingar frá skólanum. Hafi nemandi ekki lokið við að skrifa dagbók þegar bóklegu námi lýkur er mikilvægt að hann ljúki því sem allra fyrst og skili dagbók inn til skólans, þegar námsbrautarstjóri hefur farið yfir lokaáfanga dagbókar fær nemandinn formlega útskrift frá skólanum og getur kallað sig garðyrkjufræðing.
2.2 Próf
Próf eru að öllu leyti sambærileg í fjarnámi og hefðbundnu námi (sjá kennsluskrá LBHÍ). Fjarnemar eiga þess oftast kost að taka lokapróf í heimahéraði, þeir standa sjálfir straum af kostnaði sem prófunum fylgja og finna sér próftökustað í samráði við fjarnámsstjóra. Öllum fjarnemum býðst að taka próf á Reykjum/Hvanneyri, án próftökugjalds. Fjarnemar eru beðnir að kynna sér kafla um próf og próftöku í starfsnámi (sjá www.lbhi.is).
2.2 Kröfur um tölvukost
Til að taka þátt í fjarnáminu verður nemandinn að hafa aðgang að tölvu með tengingu við Internetið. Nauðsynlegt er að eftirfarandi búnaður sé til staðar.
Vélbúnaður:
Tölva minnst Pentium-300MHz með 64 Mb (stýrikerfi: Win98/ME/2000/XP) eða sambærileg Machintosh tölva með uppsettann Firefox vefskoðara
Tengibúnaður við Internet, minnsti hraði 28.8 Kbps
Mjög æskilegt að hafa aðgang að prentara.
Hugbúnaður:
Windows XP (lágmark 2000)
Ritvinnsluforrit og Töflureiknir (ekki eldra en Word/Excel 2000)
Internet Explorer 6,0 (ekki eldra)
Tölvupóstforrit. Nemendur eru hvattir til að nota örugga póstþjóna, ekki gjaldfrjálsan aðgang að ótryggum þjónum, slíkt býður upp á vandamál svo sem vírussmitun.
Vírusvarnarforrit er nauðsynlegt að hafa
3. Undirbúningskröfur
Fjarnemar í garðyrkju þurfa að uppfylla sömu undirbúningsskilyrði og þeir sem eru í reglubundnu námi.
Gert er ráð fyrir að nemendur hafi nokkra þjálfun í tölvunotkun og séu m.a. kunnugir ritvinnslu- og töflureikniforritum og vanir að nota tölvupóst og vafra.
4. Kostnaður
Við innritun greiðist grunngjald og síðan fast gjald fyrir hverja einingu í námi þannig:
- Innritunargjald kr. 27.000,- greiðist fyrir skólaárið
- Fyrir hverja einingu sem tekin er í fjarnámi greiðast kr. 2.700,-
Auk þessa kemur til námsgagna- og dvalarkostnaður sem er ákaflega mismunandi eftir því hvaða áfanga nemendi tekur hverju sinni. Prófkostnað greiðir fjarnemi sem ekki tekur sín próf á Reykjum/Hvanneyri.
5. - Innritun - Upphaf náms
Nýnemar á garðyrkjubrautum eru teknir inn annað hvert ár. Nýnemar eru teknir inn nú (fyrir haustið 2010) svo næst verður tekið inn í þessar brautir haustið 2012.
Eyðublöð til umsóknar um þátttöku í fjarnámi fást hjá skólanum. Umsóknir skal senda til skólans. Utanáskriftin er:
Kennsluskrifstofa LbhÍ
Hvanneyri
311 BORGARNES
Fjarnemar verða að mæta að Reykjum í byrjun fyrstu annar til kynningar á skipulagi námsins. Einnig er skyldumæting í verklega þætti og námslotur (sjá yfirlit hér aftar).
Það er von okkar að meðfylgjandi gögn veiti væntanlegum fjarnemum nauðsynlegar upplýsingar.
5. Áfangalýsingar garðyrkjubrauta
Áfangalýsingar má finna á heimasíðu skólans: www.lbhi.is
Vinstra megin á síðunni er valið “Nám” og þar undir “Starfsmenntanám”. Inn á síðunni sem þá opnast er síðan smellt á viðkomandi braut – þá birtist texti og neðst í honum er: “Sjá ... – braut...” smellið á þann tengimöguleika og þá er komið inn í skipulag námsins á viðkomandi braut.
Fyrst verður fyrir listi yfir áfanga annarinnar – smella má á áfangaskammstöfunina og þá birtist áfangalýsing viðkomandi áfanga.
6. Skipulag garðyrkjubrauta í fjarnámi
Hér á eftir eru upplýsingar um námsfyrirkomulag hverrar brautar (.pdf skjöl) – þar eru allir áfangar hverrar annar taldir upp í röð.
Fjarnám - skipulag