English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
Starfsmenntanám
Fimm námsleiðir
Í starfsmenntanámi við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) eru fimm námsleiðir og hægt að velja mismunandi áherslur. Umsækjendur skulu hafa lokið tveimur til fjórum önnum í framhaldsskóla. Námið er lánshæft hjá LÍN.
Kennsla í búfræði fer fram á Hvanneyri.
Garðyrkjugreinar eru kenndar á Reykjum í Ölfusi.

Smellið hér til að sjá fjarnám. Til að komast inn á viðkomandi braut þá getur þú valið hana hér til vinstri.

Flettibæklingur um starfsmenntanám. Smellið hér.

Endur- og símenntun
Endur- og símenntun er mikilvægur þáttur í starfsemi skólans. Hún byggist á námskeiðahaldi um land allt fyrir fag- og áhugafólk í garðyrkju, skógrækt og landgræðslu auk hefðbundinna búfræðigreina, skipulags- og umhverfisfræða. Nokkur námskeið eru haldin í samvinnu við Skógrækt ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Einnig eru haldin námskeið í samvinnu við önnur fagfélög, ekki síst búnaðarsamböndin í landinu. Þátttakendur á lögbýlum fá styrk til að sækja námskeið. Einnig geta þeir sem þurfa að ferðast langa leið til að komast á námskeið fengið styrk. Sjá upplýsingar um Starfsmenntasjóð bænda á heimasíðu Bændasamtaka Íslands.
Sjá einnig endurmenntun

Námskeið LBHÍ eru haldin á Hvanneyri í Borgarfirði, að Reykjum í Ölfusi og víðar.



Skrá um viðurkenndar
prófgráður á
framhaldsskólastigi frá LbhÍ


Starfsmenntun:
Búfræðingur 2 ár til 84 eininga.
Lýsing: Sérhæft undirbúningsnám og starfsnám í búfræðum

Garðyrkjufræðingur af blómaskreytingabraut. 2 ár til 86 eininga.
Lýsing: sérhæft starfsnám í blómaskreytingum og meðhöndlun afskorinna blóma og pottaplantna.

Garðyrkjufræðingur af garðplöntubraut, 3 ár til 132 eininga
Lýsing: Sérhæft starfsnám í uppeldi, ræktun og fjölgun garð- og skógarplantna

Garðyrkjufræðingur af skrúðgarðyrkjubraut, 3 ár til 132 eininga.
Lýsing: Lögfest iðngrein í byggingu garða og viðhaldi þeirra

Garðyrkjufræðingur af skógræktarbraut, 3 ár til 132 eininga
Lýsing: sérhæft starfsnám á sviði skógræktar

Garðyrkjufræðingur af umhverfisbraut, 3 ár til 132 eininga
Lýsing: Sérhhæft starfsnám á sviði umhverfistækni, einkum í framleiðslu og nýtingu moltu.

Garðyrkjufræðingur af ylræktarbraut 3 ár til 132 eininga.
Lýsing: sérhæft starfsnám í uppeldi, ræktun og fjölgun grænmetis, afskorinna blóma og pottaplantna.