Nemendur og starfsfólk hafa aðgang að þráðlausu neti sem kallað er LBHI og er aðgengilegt á eftirfarandi stöðum:
Á Hvanneyri í Ásgarði, Gamla skóla, Rannsóknahúsi og í Bútæknihúsi. Á Reykjum í kennslustofum og matsal. Á Keldnaholti, Reykjavík í fundarsölum á 1 og 3 hæð. Á sömu stöðum finns eduroam. Til að tengjast þráðlausa netinu LBHI þarftu að fá aðgangslykil hjá starfsfólki tölvumála.
Í nemendagörðum á Hvanneyri er a.m.k. 1 nettenging í hverri íbúð. Nemendur geta tengst beint með leiðslu.
EDUROAM er kerfi samtengdra auðkenningarþjóna hjá rannsókna- og háskólanetum víðsvegar í heiminum. Með tengingu við Eduroam, geta notendur háskóla og rannsóknastofnana tengst netum annara Eduroam tengdra aðila víðs vegar um heiminn. Þannig getur starfsmaður eða nemandi LbhÍ farið með sína fartölvu t.d. til Háskóla Íslands og tengst þar eduroam, með því að slá inn notendanafn sitt hjá LbhÍ (nem.xxx@lbhi.is) og viðeigandi lykilorð. Athugið að eduroam veitir eingöngu aðgang að Internetinu en ekki aðgang að gagnasvæðum.
Sjá leiðbeiningar hér að neðan.
Leiðbeiningar fyrir makka (hjá HÍ)
Nánari upplýsingar um eduroam er að finna hér.
Ýmsir tengipunkar og leiðbeiningar erlendis
Instructions in english