English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
Umhverfisdeild

Umhverfisdeild LbhÍ hefur á að skipa fjölþættri þekkingu á sviði náttúru- og umhverfisvísinda, skipulags og landslagsarkitektúrs. Innan deildarinnar er boðið um á fjölbreytt nám á sviði náttúru – og umhverfisvísinda, umhverfisskipulags, skógfræði og endurheimt landgæða. Lögð er áhersla á sveigjanleika og fjölbreytta valkosti í náminu þar sem nemandanum hefur tækifæri til að laga námið að áhugasviðum, jafnframt því sem hann öðlast breiðan bakgrunn fyrir margvísleg störf eða frekari menntun. Framhaldsnám við deildina er einstaklingsmiðað rannsóknanám.

Rannsóknastarf við umhverfisdeild er afar öflugt og fjölbreytt og rennir það styrkum stoðum undir kennslu umhverfisdeildar. LbhÍ hefur sérstöðu á mörgum sviðum rannsókna í umhverfis- og skipulagsmálum, m.a. er tengist náttúrunýtingu og náttúruvernd, vistkerfum Íslands, gróðurhúsalofttegundum, jarðvegi, skógfræði og landgræðslu, og sjálfbærri nýtingu landkosta. Rannsóknir starfsmanna deildarinnar stuðla m.a. að því að þróun landnýtingar sé náttúrulega, félagslega og efnahagslega sjálfbær og vinni með fjölbreytileika mannlífs og náttúru.

Enskt heiti:
Faculty of Environmental Sciences

Nánari upplýsingar um:
Náttúru- og umhverfisfræði
Skógfræði og landgræðslu
Umhverfisskipulag  




Ólafur Arnalds,
deildarforseti.
Sími: 433 5000
Fax: 433 5001
Netfang:
oa@lbhi.is