Hvanneyri 
Aðalstarfsstöð LbhÍ er á Hvanneyri í Borgarfirði. Á Hvanneyri er hluti af búrekstri LbhÍ sem fyrst og fremst er nýttur til kennslu og rannsókna. Á staðnum eiga nú ríflega 300 manns lögheimili en með nemendum skólans og öðrum sem dvelja þar í tengslum við skólastarfið, búa hátt á fimmta hundrað manns á Hvanneyri. Þar er rekinn grunnskóli og leikskóli
Sími: 433 5000
Póstfang: 311 Borgarnes
Keldnaholt Á Keldnaholti í Reykjavík er aðalaðsetur rannsóknasviðs LbhÍ. Á Keldnaholti er aðstaða til fóðurefnagreininga, kolefnismælinga, ýmissa umhverfisrannsókna og í næsta nágrenni er tilraunastöð LbhÍ í jarðrækt, Korpa. Fjölmargir starfsmanna LbhÍ á Keldnaholti sinna einnig kennslu á Hvanneyri og Reykjum.
Sími: 433 5000
Póstfang 112 Reykjavík
Sjá götukort
Reykir Að Reykjum í Ölfusi fer fram starfsmenntanám í blómaskreytingum, garðplöntuframleiðslu, skógrækt, skrúðgarðyrkju, umhverfisfræði og ylrækt. Á Reykjum er m. a. tilraunagróðurhús.
Sími: 433 5000
Póstfang 810 Hveragerði
Möðruvellir
Starfsstöð LbhÍ á Norðurlandi er á Möðruvöllum í Hörgárdal. Landbúnaðarháskólinn rekur kúabú á Möðruvöllum fyrir rannsóknastarfssemina sem þar fer fram. Skrifstofur LbhÍ eru í Búgarði í húsnæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar á Akureyri. Sjá meira um Möðruvelli
hér.Sími: 460 4457.
Póstfang 601 Akureyri
Stóra-Ármót LbhÍ rekur í samvinnu við Búnaðarsamband Suðurlands tilraunastöð í nautgriparækt á Stóra-Ármóti. Á búinu er megináhersla lögð á fóðrun mjólkurkúa til hámarksafurða. Búnaðarsamband Suðurlands á jörðina og allt sem henni fylgir og ber fjárhagslega ábyrgð á búinu. Tilraunastjóri er ráðinn af Landbúnaðarháskóla Íslands til að hafa umsjón með tilraunastarfseminni sem fram fer. Sjá meira um Stóra-Ármót
hér.
Sími: 480 1800
Póstfang: 801 Selfoss
Hestur Á Hesti í Borgarfirði er starfrækt kennslu og rannsóknafjárhús Landbúnaðarháskólans. Auk ýmisskonar rannsókna á sauðfé og aðbúnaði sauðfjár eru nemendum kennd þar öll helstu undirstöðuatriði varðandi fóðrun og hirðingu sauðfjár, framkvæmd kynbótastarfs s.s. mælingar og holdamat o.fl.
Sími: 433 5000.
Póstfang: 311 Borgarnes