Óskum eftir deildarfulltrúa á kennsluskrifstofu til að hafa umsjón með framhaldsnámi við skólann

Deildarfulltrúi framhaldsnáms

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða deildarfulltrúa framhaldsnáms á kennsluskrifstofu skólans. Viðkomandi mun m.a. hafa umsjón með framhaldsnámi (PhD og MSc).  Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta og upplýsingagjöf til nemenda og kennara
  • Umsjón með framhaldsnámi (PhD og MSc)
  • Halda utan um lokaverkefni/verkefnavinnu í samvinnu við leiðbeinendur
  • Samræming og samþætting kennslu í samvinnu við kennara
  • Samstarf við utanaðkomandi aðila er tengjast leiðbeiningu lokaverkefna eða kennslu
  • Vinna við ýmis kerfi og gagnagrunna sem tengjast nemendabókhaldi, upplýsingamiðlun, framkvæmd kennslu, prófa og útskrift nemenda
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Doktorsgráða er kostur
  • Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun
  • Reynsla og þekking á notkun upplýsingakerfa og gagnagrunna
  • Góð samskiptahæfni
  • Heiðarleiki og nákvæmni í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2022 Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 10.01.2022

Nánari upplýsingar veitir Álfheiður B Marinósdóttir - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - 433 5000 Guðmunda Smáradóttir - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - 433 5000

Smelltu hér til að sækja um starfið

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image