Á ráðstefnunnin verður fjallað um ýmis málefni sem snerta skógrækt og skógarumhirðu í tengslum við kolefnisbindingu, virka líffjölbreytni, vatns- og jarðvegsvernd

Ráðstefna um sjálfbæra skógrækt og skógarumhirðu

Landbúnaðarháskóli Íslands, Skógræktin og Háskólinn á Akureyri standa fyrir ráðstefnu um sjálfbæra skógrækt og skógarumhirðu dagana 5-7 október, milli 10:00 og 13:00 hvern dag. Ráðstefnan verður bæði haldin á Hótel Hallormsstað og á netinu í fjarfundi, og er haldin í tengslum við lokafund norræna CAR-ES rannsóknarsamstarfsins sem fram fer sömu daga.

Á ráðstefnunni verður fjallað um ýmis málefni sem snerta skógrækt og skógarumhirðu í tengslum við kolefnisbindingu, virka líffjölbreytni, vatns- og jarðvegsvernd. Þátttaka í ráðstefnunni er öllum heimil. Allir fyrirlestrar verða fluttir á ensku. Tengla á rafrænu ráðstefnuna má finna á enskri síðu ráðstefnunnar en þeir sem vilja mæta á staðinn á Hótel Hallormsstað eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst til Brynhildar Bjarnadóttur, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Kostnaður fyrir þá sem mæta á staðinn er 3000 krónur á dag og er hádegisverður innifalinn. 

CAR-ES er opið samstarfsnet á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar þar tengir saman skógvísindafólk frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum í því augnamiði að safna saman vísindalegri þekkingu um áhrif skógnýtingar á vistkerfisþjónustu skóga. Sú þekking er mikilvæg til stefnumótunar og ákvarðana í bæði opinberri stjórnsýslu sem varðar málefni skóga og hjá fyrirtækjum sem nýta náttúruauðlindir skóga. Samstarfinu er einnig ætlað að örva rannsóknasamskipti og miðlun upplýsinga innan Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á þessu málefnasviði. Þriðju og síðustu starfsáætlun CAR-ES samstarfsins lauk um síðustu áramót og fundurinn sem ráðstefnan á Hallormsstað er haldin í tengslum við er lokafundur norræna samstarfsins.

Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér. Nýjustu útgáfu má nálgast á heimasíðu Skógræktarinnar hér.

---

Sustainable Forest Management Research in the Nordic/Baltic Region

A mini-conference will be held in Iceland 5-7 October 2021 in conjunction with the Final Meeting of the Nordic/Baltic CAR-ES network. Various topics of forest management will be discussed in the context of carbon sequestration, functional biodiversity, water quality and soil quality.

On-line and in situ in Iceland 5-7 October 2021 Conference venue: Hótel Hallormsstaður in East-Iceland, situated in the heart of Hallormsstaður National Forest, managed by the Icelandic Forest Service.

Further info can be found here

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image