Tveggja ára námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku
Það er stefna LbhÍ að bjóða hestafólki upp á vandað nám um íslenska hestinn og allt sem lýtur að umgengni við hann. Endurmenntun LbhÍ, í samvinnu við Landsamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opnar nú fyrir nýja námshópa í áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Fyrstu hóparnir innrituðust í námið haustið 2008 og útskrifuðust þeir frá Hestamiðstöð LbhÍ vorið 2010, alls 34 Reiðmenn. Í gangi eru tveir hópar, annar í Hestamiðstöðinni Dal og hinn í Rangárhöllinni.
Námið er ætlað hinum almenna hestamanni sem vill á markvissan og skipulegan hátt auka færni sína á flestum þeim sviðum sem varða íslenska reiðhestinn. Námið er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem nemendur koma með sinn hest og taka fyrir ákveðinn hluta af reiðmennskunni. Einnig verður farið yfir bóklegt efni í gegnum fjarnám. Hér er því um sambland af staðarnámi og fjarnámi að ræða þar sem ætlast er til að nemendur undirbúi sig bæði í verklegum og bóklegum atriðum heima.
|
Námskeiðið er byggt upp af námi í reiðmennsku og er megináherslan lögð á það en einnig er þetta almennt nám um m.a. sögu og þróun hestsins, fóðrun hans og frjósemi og kynbætur.
Náminu er því skipt í eftirfarandi áfanga og einingar: 1. Hestamennska (8 ECVET) 2. Reiðmennska I og II (17 ECVET) 3. Keppni og kynbætur (8 ECVET) Ýtið á hnappinn > Sjá nánari lýsingu á náminu
Námið er metið til samtals 33 ECVET-eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Slík einingagjöf metur þá heildarvinnu sem ætlast er til að nemendur leggi fram og er háð því að nemendur hafi sótt 90% verklegra tíma í staðarnámi og standist námsmat. Að baki hverrar einingar er gert ráð fyrir 3 heilum vinnudögum nemandans, hvort sem um er að ræða fyrirlestra, verklega tíma eða heimanám. Umsækjendur þurfa að hafa náð 16 ára aldri.
Náminu er skipt niður á fjórar námsannir. Á hverri önn er gert ráð fyrir að nemendur mæti í staðarnám fjórar helgar, eða einu sinni í hverjum mánuði frá september og fram í apríl. Það nám verður bæði á formi umræðna og verklegrar kennslu þar sem nemendur vinna með eigið hross. Námsmat fer fram í lok hverrar annar. Gert er ráð fyrir að nemendur verji 1,5-3 dögum í mánuði, allt eftir áföngum, í bóklegt heimanám með stuðningi fjarnáms og við verklega þjálfun hrossins.
Ýtið á hnappinn > Almennt um námsfyrirkomulag og verð
Verkefnisstjóri námsins er Ásdís Helga Bjarnadóttir hjá Endurmenntun LbhÍ, hún veitir einnig allar nánari upplýsingar. Faglegir umsjónarmenn námsins eru Reynir Aðalsteinsson tamningameistari og Þorvaldur Kristjánsson kynbótadómari, sérfræðingar hjá LbhÍ.
Umsóknarfrestur í Reiðmanninn er runninn út fyrir námsárin 2010-2012, en frestur hefur verið framlengdur til 17. ágúst vegna náms á Akureyri og Iðavöllum á Fljótsdalshéraði!!
Staðsetning: Stefnt er að því að bjóða Reiðmanninn fram í öllum fjórðungum landsins ef áhugi er fyrir hendi og næg þátttaka fæst;
- á Héraði,
- á Akureyri,
- í Borgarfirði,
- á Flúðum og
- á Höfuðborgarsvæðinu
Viðkomandi umsækjandi getur óskað eftir því að taka námskeiðið á einum af þessum stöðum, annars gildir nálægð við ritað lögheimili.
Umsóknareyðublað Vegna framlengds frests á Akureyri og Iðavöllum á Fljótsdalshéraði.
Fylgist með yfirliti stakra námskeiða undir ,,Námskeið í tímaröð".
|

Ásdís Helga Bjarnadóttir Verkefnisstjóri námsins sími: 843 5302 netfang: asdish@lbhi.is
 Reynir Aðalsteinsson Faglegur umsjónarmaður sími: 893 5946 netfang: reynir@lbhi.is
 Þorvaldur Kristjánsson Faglegur umsjónarmaður sími: 866 2199 netfang: thorvaldurk@lbhi.is
Skiptiborð skólans: 433 5000
|
|