|
LbhÍ rekur öfluga endurmenntunardeild sem þjónar landinu öllu. Námskeið eru haldin víða um land, auk þess sem þau eru haldin á Hvanneyri og að Reykjum í Ölfusi.
Endurmenntun LBHÍ býður jafnt stutt og löng námskeið og áhersla er lögð á að þau henti fólki í fullri vinnu. Þá er boðið upp á sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Endurmenntunardeild LbhÍ auglýsir námskeið sín á vefsíðu skólans og á vefsíðunni www.landbunadur.is . Auk þess eru námskeið kynnt í samstarfi við aðrar landbúnaðarstofnanir og ráðunautaþjónustu. Starfsmenntasjóður Bændasamtaka Íslands, sem áður var innan Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, er opin fyrir umsóknum um stuðning við námskeiðsgjöld - sjá tengil hér til hægri. Auk þess er hægt að leita stuðnings frá ýmsum stéttarfélögum og öðrum sjóðum.
Námskeiðsgjöldin eru mynduð af þeim kostnaði sem til fellur vegna námskeiðsins en þátttkendur verða sjálfir að greiða fyrir kvöldverð og gistingu þegar það á við.
Haft verður samband við þátttakendur nokkrum dögum áður en námskeið hefst og þeir beðnir um að staðfesta þátttöku. Eftir að námskeið hefst er greiðsluseðill sendur til greiðanda. Vinsamlegast athugið að ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið, en hefur ekki tilkynnt forföll með formlegum hætti til endurmenntunardeildar LBHÍ áður en námskeið hefst, eða hættir eftir að námskeið er hafið, þá mun LBHÍ innheimta 50% af námskeiðsgjaldi. Ef biðlisti er á námskeiðinu verður námskeiðsgjaldið innheimt að fullu. |
 Guðrún Lárusdóttir endurmenntunarstjóri sími 843 5308. netfang: gurra@lbhi.is
 Ásdís Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri sími 843 5302 netfang: asdish@lbhi.is
 Björgvin Örn Eggertsson verkefnisstjóri sími: 843 5305 netfang: bjorgvin@lbhi.is
|