Aðstaða til verklegs náms

Bú skólans

Image

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur um árabil staðið fyrir umfagsmiklum búrekstri á Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði.

Búreksturinn er grunnur fyrir mikilvæga þætti í kennslu og rannsóknum við stofnunina og hornsteinn íslenskra landbúnaðarvísinda. Áherslur hafa verið í búfjárrækt og jarðrækt en einnig á seinni árum í atferlis-, umhverfis- og orkuvísindum. Þá tilheyrir einnig hestamiðstöðin að Mið-Fossum skólanum auk jarðanna Kvígsstaða og Mávahlíðar. 

Eftir sem áður er meginmarkmið að reka kennslu- og rannsóknarbú í hæsta gæðaflokki fyrir starfsemi háskólans til afnota fyrir vísindasamfélagið. Skapa með því aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn LbhÍ og samstarfsmenn skólans, bæði utan lands og innan, til fræðslu og rannsókna sem tengjast landbúnaði, auðlindum og umhverfismálum í víðum skilningi.

Kúabú

Image

Hvanneyrarbúið ehf sér um rekstur kúabúsins á Hvanneyri. Þar er mjólkurframleiðslubú og framleiðir um 460 þús lítra á ári ásamt því að sinna kennslu og rannsóknum í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Bústjóri er Egill Gunnarsson
Fjósameistari er Björn Ólafsson  

Hvanneyrarbú er tilrauna og kennslufjós

Image

Sauðfjárbú

Image

Á Hesti í mynni Lundareykjadals er rannsóknarbú fyrir sauðfé og er það eitt fremsta sauðfjárbú í landinu í dag. Þar fer fram verkleg kennsla í sauðfjárrækt. 

Bústjóri er Logi Sigurðsson

Sauðfjárbúið að Hesti

Image

Hestamiðstöð

Image
Landbúnaðarháskóli Íslands rekur vel búna hestamiðstöð að Mið-Fossum 5 km frá Hvanneyri. Þar er mjög góð aðstaða til að stunda hestamennsku, 70 hesta hús með góðum stíum, björt og glæsileg reiðhöll með áhorfendastúku, útigerði og góðar reiðleiðir. Þá er einnig mjög góð aðstaða fyrir reiðmenn og kennara. 

Bústjóri er Guðbjartur Stefánssongudbjartur [hjá] lbhi.is
Starfsmaður bús Ragnheiður Ósk Helgadóttir 

Á Mið-Fossum er öll aðstaða til hestamennsku

Image
logo

Knowledge in the field of sustainable use of resources, environment, planning and food production.

LBHÍ / AUI

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Phone 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Electronic invoices
Image

Campuses

Shortcuts

Social media

Image
Image