Mynd sem tengist textanum

MS gráða 120 ECTS

Hestafræði

Meistaranám í Hestafræði er rannsóknarmiðað meistaranám. Markmið þess er að veita einstaklingsbundna menntun og þjálfun í hestafræði.

Meistaranám í Hestafræðum

Sækja um

Meistaranám í hestafræðum

Hestafræði

Námið felur yfirleitt í sér 60 ECTS sjálfstætt rannsóknarverkefni og 60 ECTS í námskeiðum. Aðeins 18 einingar eru skyldunámskeið; námskeið í vísindaskrifum, námskeið um rannsóknarsiðfræði og (virk þátttaka í) málstofum framhaldsnema.

Önnur námskeið eru ætluð til að styðja nemandann í rannsóknarverkefninu. Þau er hægt að taka við LbhÍ eða aðra háskóla innanlands eða erlendis.

Þegar nemandi sækir um í rannsóknarmiðuðu meistaranámi fær hann skipaðan tengilið úr röðum akademísks starfsfólks LbhÍ, hafi hann ekki þegar fundið slíkan. Þessi einstaklingur hjálpar nemandanum að þróa hugmynd um rannsóknarverkefni, að finna að minnsta kosti tvo hæfa leiðbeinendur til að mynda meistaranámsnefnd og aðstoðar við gerð námsáætlunar. Val á námskeiðum skal styðja við rannsóknina á rökréttan hátt og uppfylla almenn hæfniviðmið LbhÍ um meistaranám.

Umsjónarmaður framhaldsnáms er Jón Grétar Sigurjónsson

Nánari upplýsingar má nálgast hjá [email protected]

Mynd sem tengist textanum

2025-2026

Námsskrá