Fjölbreytt námskeið í boði hjá Endurmenntun LbhÍ

Árið fer vel af stað hjá Endurmenntun LbhÍ með mjög fjölbreyttu úrvali námskeiða víða um land. Í bland við „gamla slagara“ koma ný námskeið sem taka á nýjum málum og málaflokkum.

Á vorin eru hin s.k. grænu námskeið alltaf áberandi og þar búum við vel hjá skólanum að eiga mikinn mannauð þegar kemur að fyrirlesurum. Guðríður Helgadóttir verður með námskeið í mars á Reykjum sem við köllum „Gotterí úr garðinum“. Þar mun Gurrý fjalla um það hvernig á að skipuleggja matjurtargarðinn fyrir sumarið, hvaða tegundir á að velja, hvernig á að sá fyrir hinum ýmsu tegundum, koma þeim á laggirnar, hvað þarf að gera til að fá góða uppskeru og hvernig skal njóta uppskerunnar svo fátt eitt sé nefnt.

Námskeið um hina íslensku landnámshænu hafa verið vinsæl í vor og hefur Júlíus Már Baldursson landnámshænubóndi í Þykkvabænum nú þegar haldið námskeið á Reykjum og á Hvanneyri en stefnir svo norður í Eyjafjörð 18. mars og mun halda námskeið á Hrafnagili.

Jarðgerðarnámskeið verður haldið á Reykjum þann 18. mars og mun Gunnþór K. Guðfinnsson kenna safnhaugagerð og jarðgerð. Fleiri og fleiri sveitafélög eru farin að bjóða upp á lífrænar tunnur.

Frá því að nýju efnalögin tóku gildi árið 2013 hefur Endurmenntun LbhÍ boðið upp á námskeið í samræmi við reglugerð um notkun varnarefna. Hafa ýmsir aðilar sótt þessi námskeið, bæði þeir sem hyggjast starfa við meindýraeyðingar og eins þeir sem starfa við garðaúðun og landbúnað. Næsta námskeið hefst hjá LbhÍ á Keldnaholtinu 6. mars n.k.

Rúningsnámskeið verður haldið á Hesti í Borgarfirði 6. og 7. mars, en nokkur ár eru síðan síðast var boðið upp á rúningsnámskeið og því kærkomið að fá Jón Eyjólfsson bónda á Kópareykjum í Borgarfirði til liðs við okkur í kennslu á rúningi.

Um nokkurt skeið hafa námskeið eins og Torf- og grjóthleðsla, Grjóthleðsla, Húsgagnagerð úr skógarefni, Tálgun og Trjáfellingar með keðjusög verið haldin. Öll þessi námskeið eru í boði á vorönninni og það er sammerkt með þessum námskeiðum að yfirleitt myndast biðlisti á þessi námskeið. Í ár bættum við nýju námskeiði við sem kallast Húsgagnagerð – unnið úr íslensku skógarefni. Um er að ræða sjálfstætt framhald en nú verður tekist á við stærri og meiri verkefni og spurningar.

Rétt fyrir páska verður síðan í boði nýtt námskeið sem við köllum Sumarbústaðurinn – sælureitur í sveitinni. Námskeiðið er þrískipt þar sem að Gurrý mun fjalla í upphafi um gróðursetningu út frá ýmsum sjónarhornum og þá bæði gróðursetningu á trjám, runnum, fjölæringum og matjurtum. Þá mun Ágústa Erlingsdóttir brautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar fjallað um jarðvegsbætur og grasflatir í bland við hellulagnir og önnur grá svæði. Í lokin mun Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur fjalla um grisjun og trjáfellingar.

Í maí þegar gróður verður kominn af stað mun svo Guðrún Bjarnadóttir náttúrufræðingur og handverkssona kenna á tveimur jurtalitunarnámskeiðum þar sem hún mun fjalla um litunarferlið frá upphafi til enda þegar notaðar eru íslenskar jurtir til litunar á ull.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image