Tímabundið þjónusturof á Uglu um helgina
25.06.2025
Tímabundið þjónusturof á Uglu um helgina. Photo Christin Hume / Unsplash

Vegna flutnings vélasalar Upplýsingatæknisviðs Háskóla Íslands verður hluti af tölvuþjónustu Landbúnaðarháskólans óaðgengilegur tímabundið helgina 27.-29. júní. Þetta hefur áhrif á:

  • Uglu
  • Greiðslukerfi, þar með talið greiðslu skráningargjalda

Niðritími:Frá föstudegi 27. júní kl. 12:00 til sunnudagsins 29. júní kl. 23:00.

Gert er ráð fyrir að Ugla verði komin aftur í gagnið í síðasta lagi að morgni mánudagsins 30. júní, þó líklegt sé að hún verði aðgengileg töluvert fyrr.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn á meðan unnið er að mikilvægu innviðaverkefni.