• Forsíða
  • Nám
  • Annað nám
  • Gró LRT (Landgræðsluskólinn)

Landgræðsluskóli GRÓ

GRÓ LRT

Landgræðsluskóli GRÓ (GRÓ LRT) er samstarfsverkefni utanríkisráðuneytis Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Lands og skóga. GRÓ LRT býður upp á öflugt sex mánaða nám á framhaldsstigi á sviði endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar landnotkunar. Námið er sérsniðið að starfandi sérfræðingum frá samstarfslöndum sem glíma við alvarlega landhnignun.

Meginmarkmið námsins er að þjálfa starfandi sérfræðinga frá tekjulágum löndum í aðferðum og fræðilegum grunni sjálfbærrar landnýtingar og endurheimtar lands. Jafnframt er markmiðið að efla getu þeirra til að þróa, innleiða og styðja við slík verkefni í heimalöndum sínum.

Sex mánaða nám GRÓ LRT er metið til eininga á framhaldsstigi og fer fram árlega, frá mars til ágúst. Námið skiptist í tvo meginhluta sem eru skipulagðir sem tvö akademísk námskeið, 15 ECTS-einingar hvort.

Starfsfólk

Sjöfn Vilhelmsdóttir: Forstöðumaður

Guðrún Guðjónsdóttir: Verkefnastjóri og starfandi forstöðumaður

Gunnhildur Guðbrandsdóttir: Verkefnastjóri

Ruth Phoebe Tchana Wandji: Verkefnastjóri

Mynd sem tengist textanum

Nánar um landgræðsluskóla GRÓ

Skólinn er samstarfsverkefni utanríkisráðuneytisins, Landbúnaðarháskóla Íslands og Landgræðslunnar og er markmið hans að þjálfa sérfræðinga frá þróunarlöndum sem glíma við land- og jarðvegseyðingu og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga.

Landgræðsluskólinn hóf störf sem tilraunaverkefni árið 2007 og starfaði á árunum 2010 til 2019 undir hatti Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Frá upphafi hafa yfir 130 manns frá 13 löndum útskrifast frá sex mánaða námi skólans á Íslandi og svipaður fjöldi hefur lokið stuttum námskeiðum á vegum skólans í þróunarlöndum.

Nemar í sex mánaða námi Landgræðsluskólans koma frá þróunarlöndum sem standa frammi fyrir landeyðingu og neikvæðum afleiðingum hennar á efnahag, samfélög og umhverfi. Þau eru öll starfsmenn samstarfsstofnana Landgræðsluskólans í heimalöndum sínum þar sem þau vinna að landgræðslu, umhverfisstjórnun og/eða sjálfbærri landnýtingu. Samstarfsstofnanir Landgræðsluskólans eru einkum ráðuneyti, umhverfisstofnanir og héraðsstjórnir, en einnig háskólar og aðrar rannsóknastofnanir. Mestur hluti kennslunnar fer fram í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti en nemarnir dvelja einnig drjúgan hluta sumarsins í höfuðstöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Náminu líkur með kynningu á rannsóknaverkefnum sem nemarnir vinna að á meðan þeir dvelja hér á landi.