• Forsíða
  • Nám
  • Grunnnám
  • Diplóma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði
Mynd sem tengist textanum

Diplóma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði

Diplómanám LBHÍ opnar þér beina leið í dýralæknanám við hinn virta SGGW háskóla í Varsjá

Í haust býður Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) upp á nýja námsleið í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði. Um er að ræða tveggja ára diplómanám sem hefur það meginmarkmið að undirbúa nemendur til starfa og áframhaldandi náms á sviði búvísinda og dýraheilbrigðisvísinda. LbhÍ og Lífvísindaháskólinn í Varsjá í Póllandi (SGGW) hafa gert samning um þessa námsleið. Þegar nemendur hafa lokið diplomanáminu við LbhÍ geta þeir sótt um inngöngu á þriðja ár í dýralæknisfræði við SGGW. Upplýsingar um það nám má finna á vefsíðu SGGW.

Diploma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði

Sækja um

Inntökuskilyrði

Til að fá inngöngu í diplomanámið við LbhÍ, þarf umsækjandi að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi á þriðja hæfniþrepi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Að baki stúdentsprófsins skulu vera a.m.k. 5 framhaldsskólaeiningar á þriðja hæfniþrepi í öllum eftirtalinna námsgreina: stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði og líffræði. Jafnframt skulu vera 5 framhaldsskólaeiningar á þriðja hæfniþrepi til viðbótar í einhverjum þessara greina eða annarra raungreina.

Umsækjandi sem ekki hefur íslensku sem fyrsta tungumál þarf að sýna fram á að hafa þekkingu á íslensku á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum (CEFR).

Umsækjandi sem ekki hefur ensku sem fyrsta tungumál þarf að sýna fram á að hafa þekkingu á ensku á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum (CEFR) eða sambærilegt stig í TOEFL prófi.

Mynd sem tengist textanum

Skipulag náms 2025 - 2026

Námsskrá