- Forsíða
- Nám
- Grunnnám
- Diplóma í tamningum

60 ECTS
Diplóma í tamningum
Diplóma eða örnám í tamningafræði veitir heildstæða og hagnýta innsýn í fortamningar, frumtamningar og þjálfun unghrossa. Kennslan mun m.a. fara fram bæði innan og utandyra í mismunandi umhverfi. Eitt af markmiðum námsins er að opna hug nemenda til að nýta landsins gæði til tamninga, en festast ekki um of inni í takmörkuðu rými reiðhallarinnar. Atferli og velferð hestsins verður í hávegum höfð í allri vinnu nemenda við hestinn. Mismunandi tamningaaðferðir verða kynntar nemendum með það að markmiði að hver nemandi finni sinn styrkleika en um leið greina mismunandi eiginleika hvers hests fyrir sig og hvaða aðferð virkar best hverju sinni. Í náminu verður unnið með hvern nemenda fyrir sig í persónumiðaðri knapaþjálfun.
Diplóma í tamningum
Sækja um
Aðgangskröfur
Námið er skipulagt á háskólastigi. Nemendur sem innritast þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi á þriðja hæfniþrepi sem veitir undirbúning fyrir nám á háskólastigi.
Við mat á umsóknum er megin áhersla lögð á faglega færni og reynslu umsækjenda í hestamennsku. Allir umsækjendur skulu þreyta verklegt inntökupróf á hesti auk þess að mæta í viðtal. Inntökupróf verður nánar auglýst síðar en þar fer fram eftir 5. júní þegar umsóknargátt lokast. Umsækjendur sem búa yfir viðeigandi reynslu og færni í tamningum og hestamennsku eru hvattir til að sækja um. Þörf er á að innrita að lágmarki 12 nemendur á ári til þess að nám geti hafist.

Námskröfur
Hægt er að ljúka Diplómanámi í tamningafræði með því að ljúka öllum 60 ECTS einingum (sjá nánar í námsskrá sem verður auglýst síðar). Diplóma í tamningafræði getur orðið hluti af BS námi í hestafræði. Hver umsókn verður metin fyrir sig úr frá þeim gögnum sem henni fylgja.
Hægt að stafla önnum í örnámshluta. Um er að ræða tvær leiðir. Sú fyrri býður uppá að taka eina stuttönn í einu þar til diplómu er náð. Hin leiðin býður uppá þann möguleika að taka einungis fyrir þá áfanga sem eru sérkenndir í diplómanáminu. Um er að ræða áfangana fortamningar, frumtamningar 1 & 2 og þjálfun unghrossa 1 & 2, líffræði hesta heilsufræði hesta og verknám. Diplómu líkur ekki nema öllum áföngum í námsleið sé lokið.
