- Forsíða
- Nám
- Starfsmenntanám
- Búfræði (fjarnám)

Starfsmenntanám
Búfræði (fjarnám)
Búfræðinám er góður undirbúningur fyrir alla sem koma að landbúnaði með einum eða öðrum hætti. Markmið námsins er annars vegar að búa nemendur undir fjölbreytt störf á sviði landbúnaðar- og matvælaframleiðslu með þeim hætti að þeir uppfylli hæfnikröfur starfsins og hins vegar að búa nemendur undir frekara nám.
Búfræði
Sækja um
Fjarnám
Fjarnámið er byggt upp á svipaðan hátt og hefðbundið búfræðinám. Nemendur innritast á sama hátt í skólann og stunda námið á hálfum hraða.
Flestir áfangar eru kenndir yfir vetrartímann en einhverjir áfangar koma inn á sumarönn (plöntusafn, námsdvöl og valfög).
Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um internetið. Því er mikilvægt að allir séu nettengdir og kunnugir samskiptum á netmiðlum.
Verklegir hlutar búfræðinámsins eru kenndir í fjarnemavikum sem fara fram tvisvar fyrir áramót og tvisvar erftir áramót á ári hverju. Reynt er að stytta eins og mögulegt er fjarveru nemenda frá búum sínum en gera má ráð fyrir 3-5 dögum í hverri fjarnemaviku. Nánara skipulag þessa þáttar námsins er kynnt við upphaf hverrar annar.
Kennsluhættir
Samskipti nemenda og skóla eru í megindráttum um internetið. Því er mikilvægt að allir séu nettengdir og kunnugir samskiptum á netmiðlum. Verklegir hlutar búfræðinámsins eru kenndir á námskeiðum sem haldin eru eftir þörfum á Hvanneyri. Reynt er að stytta eins og mögulegt er fjarveru nemenda frá búum sínum. Nánara skipulag þessa þáttar námsins er kynnt við upphaf hverrar annar.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur um fjarnám í búfræði skulu vera a.m.k. 25 ára, hafa nokkurra ára reynslu af búskap og vera starfandi í búskap þegar viðkomandi sækir um. Mikilvægt er að í umsókn komi fram allar upplýsingar um fyrra nám og starfsreynslu. Umsækjendur verða teknir í viðtöl áður en þeir eru teknir inn í námið.
Næst tekið inn 2027.
Skráningargjald
Skráningargjald fyrir skólaveturinn 2027-2028 er 60.000kr. Próftökugjald (4000kr) verður innheimt í hverjum námsáfanga í stað einingagjalds áður.

Námskrá 2026 - 2027
Námsskrá