• Forsíða
  • Nám
  • Þjónusta
  • Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ýmsa þjónustu, leiðbeiningar og stuðning á meðan á námi stendur og leggur áherslu á að sníða hana að þörfum þeirra sem eftir henni leita, m.a.

  • Ráðgjöf og leiðsögn um vinnubrögð í háskólanámi
  • Námskeið í námstækni og kvíðastjórnun
  • Ráðgjöf vegna sértækra námsörðugleika eða fötlunar
  • Ráðgjöf og leiðsögn á mati og greiningu á náms- og starfsfærni
  • Persónuleg ráðgjöf og stuðningur vegna tímabundinna erfiðleika í einkalífi
  • Áhugasviðsgreining
  • Starfsráðgjöf

Nemendur geta fengið leiðsögn um val á námi sem og upplýsingar um þá þjónustu sem stendur þeim til boða innan skólans. Náms- og starfsráðgjafi hefur umsjón með málefnum fatlaðra nemenda og nemenda með sértæka námsörðugleika.

Mynd sem tengist textanum

Tímapöntun

Nemendaráðgjöf HÍ sér um náms- og starfsráðgjöf fyrir LbhÍ.

Hægt er að velja á milli þess að bóka viðtal á Háskólatorgi HÍ, á Teams eða í síma.

ATHUGIÐ einungis er hægt að bóka viðtöl hjá ráðgjafa 8 - 10 daga fram í tímann.

Tvisvar í mánuði verða ráðgjafar á Hvanneyri og þá er hægt að panta tíma hér:

Almennar fyrirspurnir; nams (hjá) lbhi.is og vegna úrræða; urraedi (hjá) lbhi.is