• Forsíða
  • Rannsóknarverkefni
  • Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld—áskoranir, leiðir og ávinningur
Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld—áskoranir, leiðir og ávinningur
22.03.2021
Mynd sem tengist textanum

Tilgangur verkefnisins er að auka skilvirkni endurheimtar birkiskóga og efla samfélagslega sátt og þátttöku almennings í slíkum verkefnum. Í verkefninu er greint hvaða þættir hvetja eða hamla náttúrulegu landnámi og útbreiðslu birkis, metin áhrif endurheimtar á líffræðilega fjölbreytni, kolefnisbúskap og landslag og kannað hvernig stjórnkerfi, stofnanaumhverfi og samfélagið í heild styðja eða draga úr endurheimt. Lögð er áhersla á þverfræðilega nálgun og ávinning af samþættingu ólíkra fræðasviða. Í því felst að tengja vistfræðilegar forsendur árangursríkrar endurheimtar við greiningar á stjórnsýslu verndar og endurheimtar, samstarfi haghafa, viðhorfum almennings og hlutverki birkis í menningu, listum og hönnun. Verkefnið miðar þannig að þróun bæði vistfræðilegra og stjórnsýslulegra lausna og verkfæra til að auka skilvirkni endurheimtar. Verkefnið er unnið í samstarfi háskóla, fagstofnana á sviði umhverfismála og sprotafyrirtækis og þjónar jafnframt sem þjálfunarvettvangur fyrir meistara- og doktorsnema. Afraksturinn mun styðja Ísland í að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og styrkja stefnumótun á sviði umhverfismála.

Tengiliðir

Ása Aradóttir

Prófessor

[email protected]
Mynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanum