• Forsíða
  • Rannsóknarverkefni
  • Hlutlæg heltigreining hjá íslenska hestinum
Hlutlæg heltigreining hjá íslenska hestinum
01.01.2024
Mynd sem tengist textanum

Helti er birtingarmynd sársauka í stoðkerfi sem kemur niður á velferð hrossa og notkun þeirra til reiðar. Álagsmeiðsli eru algeng orsök helti og snemmgreining er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að grípa til aðgerða áður en varanlegur skaði verður.

Mælingar á hreyfingum í efri hluta líkamans, í lóðréttu plani, gefa vísbendingar um hvort hreyfingar hestsins séu samhverfar milli skástæðna á brokki. Á undanförnum árum hefur orðið mikil þróun í hlutlægri hreyfigreiningu, sem hefur reynst öflugt tæki við greiningu á helti hjá hrossum. Annars vegar er notast við þráðlausa nema sem festir eru á tiltekna líkamshluta hestsins og hins vegar við greiningu á myndböndum með aðstoð gervigreindar.

Tilgangur rannsóknarinnar er að skapa vísindalegan grunn til að bæta hlutlæga heltigreiningu hjá íslenska hestinum.

Sértækt markmið rannsóknarinnar er að sýna fram á að mótvægishreyfingar séu til staðar í klínískum tilfellum, það er hjá hestum sem sýna helti af mismunandi orsökum og leitað er með til dýralæknis, og að þær gangi til baka þegar uppruni heltinnar hefur verið greindur og hún deyfð út með staðdeyfingu.

Tengiliðir

Sigríður Björnsdóttir

Prófessor

[email protected]

Helga Gunnarsdóttir

Doktorsnemi

[email protected]
Mynd sem tengist textanum