- Forsíða
- Rannsóknarverkefni
- Kortisól í faxi sem velferðarvísir fyrir langtímastress hjá hrossum á Íslandi
Kortisól í faxi sem velferðarvísir fyrir langtímastress hjá hrossum á Íslandi
01.03.2026

Forkönnun á því hvort mælingar á kortisóli í faxi (hári) geti greint á milli mismunandi hestahalds á Íslandi og þannig gefið vísbendingar um mismunandi langtímastreitu.
Velferð hesta er gjarnan metin með hliðsjón af frelsunum fimm. Hestar eru félagsverur, lifa að jafnaði í hópum ef þeir hafa tækifæri til þess og hafa jafnframt mikla hreyfiþörf. Íslenski hesturinn er vel aðlagaður íslenskri náttúru, þótt veðuraðstæður geti vissulega verið krefjandi. Húsvist takmarkar mörg af frelsum hestsins en veitir á móti skjól og reglubundna fóðrun.
Rannsóknaspurningin er hvort mælanlegur munur sé á langtímastreitu milli þessara hópa, sem og milli hrossa á húsi sem fá mismikla hreyfingu og útiveru.

