- Forsíða
- Rannsóknarverkefni
- Lífvæn þétting byggðar á höfuðborgarsvæðinu

Í verkefninu er skoðað hvernig þétting byggðar á höfuðborgarsvæðinu getur samræmst væntingum íbúa um búsetugæði, lífsstíl og vistvænar ferðavenjur. Lagt er upp með að árangur þéttingarstefnu ráðist af því að hún taki mið af þörfum og upplifun íbúa, þar sem samfélagsleg sátt er forsenda þess að draga úr notkun einkabíls til lengri tíma. Gengið er út frá því að þétting, fremur en áframhaldandi dreifing byggðar, styrki rekstrargrundvöll þjónustu, almenningssamgangna og virkra ferðamáta og stuðli þannig að styttri ferðalengdum, minni umferð og lægri losun gróðurhúsalofttegunda.
Jafnframt stendur innleiðing þéttingarstefnu á Íslandi frammi fyrir staðbundnum áskorunum, meðal annars vegna loftslags, landfræðilegrar stöðu og menningartengdra viðhorfa til búsetu. Markmið verkefnisins er að greina hvaða þættir skipta mestu máli til að samræma stefnumótun um þéttingu væntingum íbúa og styðja við breytingar á ferðavenjum í vistvænni átt. Byggt á rannsóknum á lífvænlegu búsetuumhverfi á norðlægum slóðum verða skilgreindir lykilþættir í nærumhverfi sem hafa áhrif á vellíðan og daglegar samgöngur. Spurningakönnun mun síðan meta að hve miklu leyti alþjóðleg viðmið eiga við á Íslandi og hvaða skipulagslausnir styðja best við sjálfbærar ferðavenjur. Niðurstöðurnar munu nýtast við stefnumótun og skipulag sjálfbærrar borgarþróunar og samþættingu byggðar og samgangna.
