• Forsíða
  • Rannsóknarverkefni
  • Metanlosun frá hauggeymslum
Metanlosun frá hauggeymslum
01.10.2025
Mynd sem tengist textanum

Mikið vantar upp á þekkingu og rannsóknir innanlands til að meta umfang losunar gróðurhúsalofttegunda (GHL) frá íslenskum landbúnaði, og losun frá hauggeymslum er þar engin undantekning. Því hófst verkefni á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands á árinu 2025, til að rannsaka losun GHL frá grindakjöllurum í sauðfjárrækt á Íslandi og haughúsum í nautgriparækt. Markmið rannsóknarinnar er að finna innlendan stuðul yfir gashæfni búfjáráburðar á nautgripa- og sauðfjárbúum, auk innlendra “methane conversion factor” (MCF) stuðla sem sýna það hlutfall gashæfninnar sem losnar sem metan. Þessir stuðlar eiga að nýtast við mat á losun metans (CH4) frá meðhöndlun búfjáráburðar í grindakjöllurun í sauðfjárrækt og í haugkjöllurum og útigeymslum í tönkum í nautgriparækt í losunarbókhaldi Íslands. Lögð verður áhersla á að mæla og meta losun CH4, N2O og CO2. Rannsóknin er styrkt af Umhverfis- og orkustofnun ásamt Atvinnuvegaráðuneytinu.

Tengiliðir

Jóhanna Gísladóttir

Lektor

[email protected]
Mynd sem tengist textanumMynd sem tengist textanum