- Forsíða
- Rannsóknarverkefni
- Natural soil warming in natural grasslands and a Sitka spruce forest in Iceland

Suðurlandsskjálftinn lok maí 2008 olli því að hlýna undir gróðurlendum sem vaxið höfðu fram að því á venjulegum, hrollköldum jarðvegi. Upphitunin er frá því að vera engin og upp í +50 °C. Þarna hefur því orðið til náttúruleg upphitunartilraun.
Við settum upp þrjár tilraunir með 30 föstum rannsóknareitum hver þar sem hlýnunin nam um +0, +1, +3, +5, +10 og +20°C í greniskógi og graslendum þar sem hlýnun hófst 2008 (MTW) og hlýnun verið til staðar a.m.k. frá 1963 (LTW). Einnig hafa verið settar upp þrjár aðrar tilraunir á graslendi þar sem: a) framboð köfnunarefnis (N) hefur verið aukið með áburðargjöf (+0, +5, +10, +50 og +350 kg N ha-1 ári-1), b) skoðað er samspil aukins N og hita (TNT) og c) þar sem jarðvegstorfum úr köldu graslendi er komið fyrir í mishlýjum jarðvegi til að skoða upphafsáhrif af hlýnuninni.
Þessir sex rannsóknainnviðir sem þarna hafa verði byggðir upp hafa dregið að stóran hóp innlendra og erlendra vísindamanna sem rannsaka fjölmarga þætti bæði jarðvegs, örvera, smádýra og gróðurs. Árið 2026 voru virkir þátttakendur 76 talsins frá 25 háskólum/stofnunum í 19 þjóðlöndum.




















