• Forsíða
  • Rannsóknarverkefni
  • Velferð íslenska hestsins í sýningum og keppni
Velferð íslenska hestsins í sýningum og keppni
01.07.2012
Mynd sem tengist textanum

Rannsóknin byggir á gögnum úr heilbrigðisskoðun keppnis- og sýningahrossa á stórmótum, Klár í keppni, og nær til þeirra hrossa sem komu fram á Landsmótum hestamanna á árunum 2012 til 2026. Markmið rannsóknarinnar er að fylgjast með þróun mikilvægra velferðarvísa yfir tíma og greina hvaða þættir hafa mest áhrif á velferð keppnishrossa. Með því að bera saman niðurstöður milli ára verður hægt að meta hvort breytingar hafi orðið á heilsufari, ástandi og öðrum þáttum sem endurspegla velferð hrossanna. Jafnframt verður leitast við að greina helstu áhrifaþætti, svo sem aldur, kyn, notkun, keppnisform og aðstæður á mótsstað. Niðurstöður rannsóknarinnar geta veitt mikilvæga innsýn í stöðu og þróun velferðar íslenskra keppnishrossa og skapað traustan grunn fyrir frekari rannsóknir, stefnumótun og úrbætur í þágu hrossavelferðar og faglegra vinnubragða innan hestamennskunnar.

Tengiliðir

Sigríður Björnsdóttir

Prófessor

[email protected]
Mynd sem tengist textanum