
Hvernig hönnum við landslag út frá sjónarhóli annarra en mannsins? Nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) glímdu nýverið við þessa spurningu með því að stíga út fyrir hefðbundna vettvangsvinnu og setja sig í spor dýranna sjáfra. Verkefnið ber nafnið “Að verða fuglar” (Becoming Birds), sem er nýstárleg vinnustofa í vistfræðilegri hönnun.
Á þremur viðburðaríkum dögum kynntust nemendur af ólíkum námsbrautum við LBHI –auk Erasmus-skiptinema – fuglaverndarsvæðinu í Andakíl og könnuðu nýjar leiðir til að læra af landslaginu og dýralífinu sem er hluti af daglegu umhverfi þeirra.
Í gegnum fjölbreytta sameiginlega, líkamlega og skynræna upplifun kynntust nemendur fuglategundum í Andakíl og þeim sem dvelja þar tímabundið sem farfuglar . Fylgst var með ferðalögum þeirra og nemendur upplifðu sjónarhorn fuglanna af eigin raun. Þeir könnuðu ólík búsvæði og vistfræðileg tengsl. Niðurstaðan var notuð til að og vinna hönnunar – og upplifunarleiðir um svæðið auk umhverfisfræðslu.
“Becoming Birds” vinnur með fjölbreytta nálgun í aðferðafræði hönnunar, þar sem rannsóknaraðferðum, samkennd og að sökkva sér djúpt í viðfangsefnið verður að verkfærakistu til að ímynda sér ný form samvista manna, dýra og landslags.
Sú aðferðafræði sem þróuð hefur verið í námskeiðinu undanfarin tvö ár af Ivan og Helenu, hlaut í sumar viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur (Award of Excellence) í flokki vinnustofa á háskólastigi (World Landscape Architecture Awards).