Laus staða: Aðstoðarmaður í rannsóknum
06.03.2026
Mynd sem tengist textanum

Vegna aukinna umsvifa er laust er til umsóknar tímabundið starf aðstoðarmanns í rannsóknum sem tengist losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaðarstarfsemi og matvælaframleiðslu. Leitað er eftir drífandi einstaklingi sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt sem og í teymi.

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg aðstoð í rannsóknum og kennslu við LbhÍ í umhverfisfræðum sem tengjast búfjárrækt og jarðrækt
  • Vinna við mælingar, gagnasöfnun og viðhald á rannsóknatækjum
  • Þátttaka í mótun nýrra rannsóknaverkefna
  • Samskipti við bændur og matvælaframleiðendur
  • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

Hæfniskröfur

  • BSc próf í búvísindum, líffræði, efnafræði eða tengdum greinum sem nýtast í loftslagsrannsóknum
  • Almenn þekking á íslenskum landbúnaði æskileg
  • Reynsla af rannsóknavinnu og/eða bústörfum æskileg
  • Áhugi á rannsóknum og miðlun þekkingar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og vottorð um menntun.

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Allir umsækjendur fá svar þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.03.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Gísladóttir

Lektor

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 4335000

Guðmunda Smáradóttir

Mannauðs- og gæðastjóri

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 4335000

Sækja um starf / Apply