• Forsíða
  • Fréttir
  • Árangursríkur fortamningarhluti í diplómanámi í tamningum við LBHÍ
Árangursríkur fortamningarhluti í diplómanámi í tamningum við LBHÍ
17.09.2026
Mynd sem tengist textanum

Fortamningarhluta í diplómanámi í tamningum við Landbúnaðarháskóla Íslands er nýverið lokið. Kennslan stóð yfir í tvær og hálfa viku undir leiðsögn Magnúsar Lárussonar. Námskeiðið gekk afar vel og lærðu nemendur margar nýjar og áhugaverðar aðferðir við tamningar á 1–2 vetra gömlum tryppum sem sýndu miklar framfarir á þessum tíma. Á lokadag námskeiðsins þreyttu nemendur próf og síðar um daginn var svo skilasýning fyrir eigendur. Magnús byrjaði á því að fara yfir helstu áhersluatriði námsins og hélt svo sýnikennslu. Í lokin sýndu nemendur eigendunum sín tryppi og ræddu ferlið við þá, svo eigendur fengu góða og skýra innsýn í vinnuna sem unnin var á tímabilinu.

Umsjónarmaður námskeiðsins, Magnús Lárusson, ber heitið M.Ag., B.Sc. og reiðkennari B hjá FT. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í búvísundum frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1981 og lauk meistaragráðu frá Oregon State University árið 1996 þar sem hann sérhæfði sig í búfjárvísindum, sálfræði og tölfræði.

Magnús býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af uppbyggingu á námi í hestamennsku, en hann starfaði meðal annars sem verkefnisstjóri hestamennskukennslunnar á Hólum í sjö ár, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands í þrjú ár, byggði upp hestamennskubrautina við Fjölbrautarskóla Suðurlands og starfrækti eigin verknámskóla á hrossaræktarbúi sínu í yfir tuttugu ár. Auk þess hefur hann starfað sem farandreiðkennari í Evrópu og Norður-Ameríku í yfir þrjá áratugi ásamt því að vera alþjóðlegur kynbóta- og íþróttadómari, en í dag rekur hann eitt stærsta hrossaræktarbú landsins í Holtsmúla 1 ásamt syni sínum og tveimur dætrum.

Nánar um diplóma í tamningum.