Árlegur samstarfsfundur LbhÍ og RML á Hvanneyri
17.08.2026
Mynd sem tengist textanum

Árlegur samstarfsfundur Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) og Ráðgjafarmiðstöðvar Landbúnaðarins (RML) var haldinn á Hvanneyri 13. og 14. ágúst síðastliðna á Hvanneyri. Þar kynntu starfsmenn frá báðum stofnunum ýmis verkefni sem hafa verið unnin eða er verið að vinna á hvorum stað. Auk þess komu gestir frá Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands og frá Landi og Skógi komu í heimsókn og sögðu frá sinni starfsemi og ræddu mögulega samstarfsfleti. Mikilvægi samstarfs og samþættingu þekkingar alveg frá landinu, gegnum landbúnaðinn og yfir í matvæli alla leið til neytenda.

Meðal umfjöllunarefna voru loftlagsáhrif vegna iðragerjun mjólkurkúa og vegna geymslu búfjáráburðar, þróun skýrsluhaldskerfa m.a. varðandi upplýsingar um umhverfisáhrif og ræktun gegn riðu, samþættingu gagnagrunna í landbúnaði, kostnaðar við gróffóðuröflun og kornrækt, velferð kynbótahrossa á Landsmóti og möguleika á byggyrkjum sem standa sig vel í erfiðum og góðum aðstæðum. Þessir fundir eru alltaf áhugaverðir sem, auk þess að kynna nýja þekkingu, brýnir okkur í öllum í að leita svara við öllum þeim spurningum sem vantar að svara fyrir íslenskar landbúnað í breiðum skilningi.