Ársfundur Landbúnaðarháskóla Íslands - Alþjóðavæðing og þýðing hennar fyrir framþróun
21.03.2025

Ásfundur Landbúnaðarháskóla Íslands fer fram 13. maí 2025 í Björtuloftum í Hörpu milli kl 8:30 og 10:30.
Yfirskrift fundarins er Alþjóðavæðing og þýðing hennar fyrir framþróun og er opinn öllum áhugasömum.
Dagskrá
- 8:30 Ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherrra - Logi Einarsson
- 8:45 Ársskýrsla Landbúnaðarháskóla Íslands - Dr. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor
- 9:00 Ársreikningur 2024 - Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri
- 9:10 Alþjóðavæðing - áhrif á rannsóknir og nýsköpun - Dr. Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstjóri Rannís
- 9:30 UNIgreen - hvaða þýðingu hefur alþjóðastarf fyrir LbhÍ - Christian Schultze, rannsókna- og alþjóðafulltrúi
- 9:50 DIGIrangeland - Evrópsk netverk um stafræna nýsköpun fyrir búfjárrækt - Dr. Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent
- 10:10 Peatland LIFEline.is - endurheimt votlendis á Íslandi - Dr. Hlynur Óskarsson, prófessor
- 10:30 Fundarlok - Dr. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor
Fundurinn er opinn öllum - vonumst til að sjá sem flest.