Ársskýrsla LBHÍ komin út og ársfundur haldinn á Keldnaholti
21.05.2026
Mynd sem tengist textanum

Ársfundur Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) var haldinn í gær, miðvikudaginn 20. maí, í húsakynnum skólans að Keldnaholti. Fundurinn var öllum opinn og gaf gott tækifæri til að líta yfir starfsemi og helstu áfanga skólans á liðnu ári.

Í tengslum við ársfundinn hefur ársskýrsla LBHÍ verið formlega kynnt og er hún nú aðgengileg öllum á heimasíðu skólans. Skýrslan veitir ítarlega innsýn í fjölbreytt starf háskólans, þar á meðal kennslu, rannsóknir og samfélagslega miðlun á sviði landbúnaðar, umhverfis- og skipulagsmála.

Áhugasamir geta nálgast skýrsluna og kynnt sér starfsemi skólans nánar hér.