
Hafrannsóknastofnun og Landbúnaðarsafn Íslands efna til málþings þann 12. mars nk. kl. 13:00 til heiðurs Sigurði Má Einarsyni, fiskifræðingi. Sigurður Már hefur sinnt rannsóknum á ferskvatnsfiskum í rúm 40 ár, en hann hóf störf hjá Veiðimálastofnun árið 1981 með námi. Í júní 1985 tók hann við starfsstöð Veiðimálstofnunnar á Vesturlandi, fyrst með starfsstöð í Borgarnesi en síðar á Hvanneyri. Helsti starfsvettvangur hans hefur engu að síður verið þær fjölmörgu laxveiðiár sem finna má á Vesturlandi.
Málþingið hefst út í Landbúnaðarháskóla Íslands, Ársal á 3. hæð.
Kl. 13:00. Málþingið sett. Anna Heiða Baldursdóttir.
13:05. Göngur bleikju í vatnakerfi Hvítár. Ingi Rúnar Jónsson.
13:30. Sjóferð 7 laxa. Jóhannes Guðbrandsson.
14:00. Kaffihlé.
14:25. Frá sjónarhóli veiðiréttareiganda. Óðinn Sigþórssoon.
14:50. Litið yfir farinn veg. Sigurður Már Einarsson.
Að loknu málþinginu munum við svo fara yfir í Landbúnaðarsafn Íslands og skoða sýninguna Saga laxveiða í Borgarfirði. Þar verður boðið upp á léttar veitingar.